Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Lionsfólk áfram ötult við söfnun birkifræs

4. júní 2026

Lionshreyfingin á Íslandi hefur undirritað viljayfirlýsingu ásamt Landi og skógi um að áfram verði haldið samstarfi um söfnun og sáningu á birkifræi. Lionsklúbbar um allt land hafa undanfarin ár lagt gjörva hönd á átakið „Söfnum og sáum birkifræi“.

Undirritunin handsöluð. Frá vinstri: Dagný S. Finnsdóttir, umhverfisstjóri Lions á Íslandi, Anna Fr. Blöndal fjölumdæmisstjóri og Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógi.

Með viljayfirlýsingunni er ljóst að Lionsfólk heldur áfram sínu mikilvæga hlutverki næstu árin við að stuðla að útbreiðslu birkiskóga og birkikjarrs á landinu. Í yfirlýsingunni segir að markmið samstarfsins skuli vera að:

  • Efla þátttöku almennings og félagasamtaka í söfnun og sáningu birkifræs.

  • Auka fræðslu og vitund um mikilvægi birkiskóga og endurheimt vistkerfa.

  • Styðja við endurheimt og útbreiðslu íslenskra birkiskóga.

  • Leggja lið við að ná þjóðarmarkmiði Íslands um að stofna til birkiskóga og birkikjarrs á 5% landsins fyrir 2030

Með samstarfinu stefna Lionsklúbbar að því ásamt Landi og skógi að:

  • Standa árlega að kynningu og hvatningarátaki á þeim tíma ársins þegar safna má fræi af birki.

  • Hvetja Lionsklúbba og almenning til þátttöku um allt land.

  • Miðla leiðbeiningum og fræðslu um söfnun, meðferð og sáningu birkifræs.

  • Fylgja verkefninu eftir með reglulegu samráði LIONS og Lands og skógar á samstarfstímanum.

Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga, landa og innviða hjá Landi og skógi, skrifaði undir viljayfirlýsinguna fyrir hönd stofnunarinnar 30. maí á Lionsþingi sem fram fór á Laugarvatni. Fyrir hönd Lions á Íslandi undirrituðu umhverfisstjóri hreyfingarinnar, Dagný S. Finnsdóttir, og fjölumdæmisstjórinn Anna Fr. Blöndal. Að neðan er svo mynd af Önnu að tína birkifræ í Reykhúsaskógi Eyjafirði haustið 2024.

Anna Blöndal tínir birkifræ í Reykhúsaskógi á degi íslenskrar náttúru. Ljósmynd: Pétur Halldórsson