Lárus Heiðarsson – minning
6. nóvember 2026
Í dag er jarðsunginn frá Akraneskirkju góður félagi okkar hjá Landi og skógi, Lárus Heiðarsson, skógfræðingur og sérfræðingur á sviði rannsókna, vöktunar og árangurs. Lárus var vinsæll skógræktarráðgjafi um árabil en seinni árin einbeitti hann sér að rannsóknum þar sem meginviðfangsefnin snertu viðarvöxt, grisjun og skógræktarskipulag.

Lárus Heiðarsson var fæddur á Akranesi 7. maí 1966. Hann nam skógfræði við Ekenäs forstinstitut í Finnlandi og starfsaldur hans hjá Landi og skógi og forverum stofnunarinnar spannar 28 ár. Samhliða störfum sínum sem skógfræðingur var Lárus skógarbóndi á jörð sinni, Droplaugarstöðum í Fljótsdal, þar sem hann ræktaði upp af myndarskap skóg sem er með þeim vöxtulegustu og best hirtu á landinu. Reynsla hans af eigin skógrækt nýttist vel í starfi við skógræktarráðgjöf auk þess sem ræktunarstarf hans var öðrum skógarbændum eystra góð fyrirmynd. Mikið var leitað til Lárusar og gott að sækja hann heim, fá leiðsögn um skóginn og fræðast um ræktunar- og umhirðustarf hans.
Eitt helsta markmið Lárusar með skógrækt sinni var ræktun góðs nytjaskógar og tengdust rannsóknir hans því markmiði náið. Hann var meðal fremstu sérfræðinga landsins um viðarvöxt og grisjun skóga. Eftir hann liggur fjöldi ritrýndra vísindagreina í alþjóðlegum vísindaritum. Lárus hafði forystu um þróun hugbúnaðarins IceForest sem notaður er til að spá fyrir um vöxt skóga og rétta tímasetningu umhirðu í skógunum svo sem grisjun og fellingu. Með rannsóknum sínum lagði hann mikilvægan grunn að uppbyggingu og nýtingu viðarauðlindar á Íslandi. Lárus lét veikindi sín ekki aftra sér frá því að huga að fræðistörfunum og vann ötullega að því að ljúka verkefnum eða koma þeim í góðar hendur.
Skömmu fyrir andlát Lárusar birtist í tímaritinu Icelandic Agricultural Sciences ritrýnd grein sem hann ritaði ásamt Arnóri Snorrasyni, sérfræðingi hjá Landi og skógi, og Timo Pukkala, skógfræðiprófessor emeritus við háskóla Austur-Finnlands í Joensu. Enskur titill greinarinnar er Growth, biomass and stem volume models for downy birch in Iceland. Þar eru settar fram jöfnur sem lýsa vexti birkis á Íslandi. Birt eru líkön sem lýsa gróskustigi, þvermálsvexti og hæðarvexti trjáa fyrir jafnaldra ræktaða birkiskóga á Íslandi. Líkönin má nota til áætlanagerðar og til að spá fyrir um vöxt og kolefnisbindingu lífmassa í birkiskógum.
Land og skógur og starfsfólk stofnunarinnar stendur í mikilli þakkarskuld við Lárus Heiðarsson fyrir framlag hans á starfsferlinum. Stofnunin vottar fjölskyldu hans og aðstandendum öðrum innilega samúð með þakklæti fyrir það sem Lárus var faginu. Lalla verður lengi minnst.

Lárus Heiðarsson ásamt kollega við trjámælingar á Héraði. Ljósmynd: Josh Haner-The New York Times

Lárus Heiðarsson varð margsinnis Íslandsmeistari í skógarhöggi á Skógardeginum mikla á Hallormsstað. Hér er hann lengst til vinstri ásamt öðrum keppendum þegar hann hampaði titlinum í sjötta sinn 2015. Ljósmynd: Esther Ösp Jónsdóttir

Lárus og Björn Sturlaugur, sonur hans og aðstoðarmaður, við vinnu að tilraunum með notkun lífkola úr grisjunarviði í akurrækt að Vallanesi á Héraði. Ljósmynd: Eymundur Magnússon.
