Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Landgræðslunemar frá ellefu löndum brautskráðir frá GRÓ

2. september 2026

Neba Estherbel Bih frá Kamerún, sem starfar við MAB-áætlun UNESCO um manninn og lífhvolfið, flutti ávarp fyrir hönd þeirra 22 nemenda sem brautskráðir voru fyrir helgi frá landgræðsluskóla GRÓ. Hún sagði þá þekkingu og færni sem nemendurnir hefðu öðlast í náminu mjög mikilvæga. Eitt það dýrmætasta sem þau tækju með sér úr náminu væru kynnin við það fólk sem þau hefðu kynnst á námstímanum, vináttan, samtölin, sameiginleg reynsla og tengslin sem mynduðust bæði innan nemendahópsins og við fólkið sem þau kynntust á Íslandi.

Einn nemendanna með diplóma sitt. Ljósmynd: James Einar Becker/LbhÍ

Brautskráningin fór fram fimmtudaginn 27. ágúst í starfstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík. Í nemendahópnum sem nú lauk hálfs árs námi við skólann í endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu er fólk frá ellefu samstarfslöndum skólans í Afríku og Asíu. Níu Afríkuríki áttu fulltrúa í hópnum, Gana, Kamerún, Síerra Leóne, Simbabve, Lesótó, Kenía, Rúanda, Úganda og Eþíópía. Einnig útskrifuðust sérfræðingar frá tveimur löndum Asíu, Mongólíu og Úsbekistan. Þetta er í fyrsta sinn sem nemendur frá Síerra Leóne, Simbabve, Kamerún og Rúanda útskrifast úr landgræðsluskóla GRÓ.

Guðrún Guðjónsdóttir, starfandi forstöðumaður landgræðsluskóla GRÓ, minnti nemendur á í ávarpi sínu að útskriftin væri ekki endapunktur heldur upphaf nýs áfanga á ferli þeirra. Hún lagði áherslu á hversu mikilvægt væri að þau flyttu með sér til heimalandanna og nýttu í verki þá þekkingu, færni og reynslu sem þau hefðu aflað sér á Íslandi. Einnig ávarpaði hópinn nýskipaður forstöðumaður GRÓ, María Erla Marelsdóttir, á þriðja degi sínum í nýju starfi.

Nemendur GRÓ starfa hjá samstarfsstofnunum skólans, svo sem í ráðuneytum, hjá stofnunum umhverfismála, sveitar- og héraðsstjórnum, Rauða krossinum, háskólum og rannsóknastofnunum. Í hópi þeirra sem brautskráðust nú voru einnig sérfræðingar sem starfa innan MAB, áætlunar UNESCO um manninn og lífhvolfið.

Nemendur GRÓ frá Mongólíu og Úsbekistan. Ljósmynd: James Einar Becker/LbhÍ

Landgræðsluskóli GRÓ er starfræktur innan vébanda Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar hefur frá árinu 2007 verið boðið upp á sex mánaða framhaldsþjálfun í endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu. Á þessum árum hefur skólinn leitt saman sérfræðinga frá löndum sem glíma við margvísleg vandamál vegna landhnignunar. Í náminu gefst þeim færi á að læra af reynslu Íslendinga en jafnframt miðla þau þekkingu og sjónarmiðum frá heimalöndum sínum.

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sleit athöfninni, óskaði nemendunum til hamingju með áfangann og bauð viðstöddum að þiggja veitingar á þriðju hæð Keldnaholts. Í frétt um brautskráninguna á vef GRÓ er öllum nemendunum tuttugu og tveimur óskað innilega til hamingju og velfarnaðar við sín mikilvægu störf framvegis að sjálfbærri landnýtingu og endurheimt vistkerfa.

Nú nam í fyrsta sinn fulltrúi frá Kamerún við landgræðsluskóla GRÓ. Ljósmynd: James Einar Becker/LbhÍ

Frétt á vef GRÓ