Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Land og skógur og Orkugerðin semja um kaup á lífrænum áburði

21. apríl 2026

Meirihluti þess áburðar sem Land og skógur notar í verkefnum sínum verður framvegis innlendur lífrænn áburður. Mikilvægt skref í þessa átt var stigið 9. apríl þegar nýr samningur um áburðarkaup var undirritaður við Orkugerðina í Flóa.

Samningurinn er rökrétt framhald þeirrar ákvörðunar Lands og skógar undir lok síðasta árs að draga úr notkun á innfluttum tilbúnum áburði og færa sig í ríkara mæli yfir í notkun á lífrænum áburði. Þessi breyting er jákvæð á margan hátt. Með henni minnkar kolefnisspor stofnunarinnar verulega og nýting á innlendum lífrænum áburði eykst.

Kjötframleiðendur á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hafa um árabil skilað megninu af þeim afgangsefnum sem nýtast ekki í matvælaframleiðslu til verksmiðju Orkugerðarinnar í Hraungerði Flóahreppi. Orkugerðin endurvinnur afskurð, bein og fitu í áburðarmjöl og fitu. Áburðarmjöl hefur á undanförnum áratugum verið sannreynt sem afar hentugur áburður í landgræðsluverkefni á lítt grónum uppgræðslusvæðum. Gott dæmi um það er Hekluskógasvæðið þar sem kjötmjöl hefur reynst afar vel til að byggja upp nægilega jarðvegsskán til að fræ birkis og annarra plantna geti spírað og vaxið upp. Meginkostur kjötmjöls við slíkar aðstæður er að það er seinleystur áburður og áburðaráhrif þess vara í nokkur ár. Sömuleiðis inniheldur þessi áburður þau næringarefni sem gróður skortir hvað mest, svo sem fosfór og köfnunarefni.

Samstarf Orkugerðarinnar, og forvera Lands og skógar, Landgræðslunnar og Skógræktarinnar, spannar áratugi. Með þessum samningi Orkugerðarinnar og Lands og skógar er tekið stórt skref inn í hringrásarhagkerfið og stuðlað að umhverfisvænni endurheimt gróðurlenda með endurunnum íslenskum áburðarefnum.

Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógi, Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, og Ólafur Wernersson, framkvæmdastjóri Orkugerðarinnar. Ljósmynd: Guðmundur Tryggvi Ólafsson.