Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Land og skógur kynnir stuðningsverkefni sín á Landbúnaðarsýningunni

8. október 2026

Í bás Lands og skógar á sýningunni Íslenskum landbúnaði í Laugardalshöll um helgina fá gestir tækifæri til að ræða við ráðgjafa stofnunarinnar um ýmis verkefni sem notið geta stuðnings Lands og skógar og snerta uppgræðslu lands, endurheimt votlendis, skógrækt og varnir gegn landbroti. Forvitnilegir hlutir til að skoða og fræðast um verða líka í básnum.

Svipmynd frá sýningunni 2022. Ljósmynd: Ritsýn

Sýnendur á Íslenskum landbúnaði að þessu sinni eru hátt í hundrað talsins og kennir því ýmissa grasa á sýningunni. Grös eru líka eitt af því sem hægt verður að sjá í bás Lands og skógar en líka tré, jarðvegur, fræ, viður og fleira sem tengist verkefnum stofnunarinnar.

Snemma á árinu kom út ný reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni Lands og skógar sem nú er unnið að því að innleiða hjá stofnuninni. Fyrirkomulag stuðnings hjá stofnuninni er þó að mestu leyti í óbreyttri mynd en unnið er að því að samhæfa ólík verkefni og þróa þau í samræmi við hina nýju reglugerð. Með nýrri sameinaðri stofnun og endurskoðuðu regluverki gefast ýmis tækifæri til þróunar, svo sem að heilu jarðirnar verði teknar út með tilliti til allra þeirra verkefna sem Land og skógur veitir ráðgjöf um og fjármagn til. Hugmyndir um slíkt eru í þróun og í bás Lands og skógar gefst færi á samtali við ráðgjafa stofnunarinnar um slíkar hugmyndir auk umræðu um afmarkaða þætti stuðningsins.

Í bás Lands og skógar verður líka ýmislegt hægt að sjá, skoða og fræðast um sem snertir verkefni stofnunarinnar, svo sem mismunandi jarðveg, sýnishorn af trjáviði og trjáplöntum, ýmiss konar fræ, strá af melgresi og fleira af þeim toga sem vakið getur spurningar og áhugavert spjall um tilgang, markmið, árangur og ávinning af starfi Lands og skógar.

Þrír sýningardagar og búist við metaðsókn

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 er haldin í samstarfi við Bændasamtök Íslands. Hún var síðast haustið 2022 og komu þá tugþúsundir gesta á sýninguna.

Sýningin verður opnuð föstudaginn 9. október klukkan 14 og verður opin þann dag til kl. 19. Á laugardag verður opið milli klukkan 10 og 18 og á sunnudag 10 til 17.

Verið velkomin í bás Lands og skógar á Íslenskum landbúnaði 2026!

Vefur sýningarinnar

Reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt