Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Land og skógur auglýsir eftir sérfræðingi í landupplýsingakerfum

17. apríl 2024

Við erum að leita að sérfræðingi í landupplýsingateymi Lands og skógar sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir í gagnaöflun, vinnslu, greiningu, vistun og miðlun gagna. Starfið tilheyrir stoðsviði gagna, miðlunar og nýsköpunar.

Dróni

Land og skógur leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu og vernd gróðurauðlinda á Íslandi með landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu. Við erum að leita að sérfræðingi í landupplýsingateymi Lands og skógar. Landupplýsingateymið tekst á við fjölbreyttar áskoranir í gagnaöflun, vinnslu, greiningu, vistun og miðlun gagna. Viðkomandi mun starfa á stoðsviði gagna, miðlunar og nýsköpunar sem landupplýsingateymið heyrir undir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við þróun og uppbyggingu á landupplýsingakerfum og ferlum innan LOGS.

  • Þróun og uppsetning veflausna (vefkort, Storymaps og Experience Builder).

  • Gagnaöflun (Survey 123, Field Maps og Quick Capture).

  • Greiningar á gögnum.

  • Gagnaskráning og vinnsla.

  • Tilfallandi verkefni innan landupplýsingateymis.

Verkefnin fela í sér uppbyggingu stafrænna landupplýsingalausna fyrir einstök verkefni og svið innan Lands og skógar. Markmiðið er að auka aðgengi að upplýsingum ásamt yfirsýn stakra verkefna og stofnunarinnar í heild sinni. Starfið felur í sér mikil samskipti við samstarfsfólk og sérfræðinga Lands og skógar, meðal annars aðstoð við notkun og innleiðingu landupplýsingalausna. Uppbygging og skipulag verkefna ásamt þróun ferla. Vinnsla gagna inn í grunngagnasetti Lands og skógar. Önnur tilfallandi verkefni sem gætu komið til eru aðstoð við vinnslu og öflun flygildagagna. Landupplýsingar eru sívaxandi hluti af verkefnum Lands og skógar og býður starfið því upp á mikla möguleika á starfsþróun. Land og skógur styðst við landupplýsingakerfi frá ESRI og mikilvægt er að viðkomandi hafi þekkingu á því umhverfi, bæði ArcGIS Pro, Survey 123, Field maps og veflausnum.

Hæfniskröfur

Faglegir þættir:

  • Meistarapróf í landupplýsingum eða sambærileg starfsreynsla (að lágmarki tveggja ára reynsla í vinnu með landupplýsingar sem meginverksvið).

  • Góð þekking og færni í notkun ESRI-hugbúnaðar, ArcGis Pro, Survey 123, Field maps, veflausnum, kortum o.s.frv.

  • Reynsla uppsetningu veflausna og þekking á vefumhverfi ESRI.

  • Þekking á vinnu með myndgögn og myndgreiningar.

  • Hæfni við greiningar á tölulegum upplýsingum.

  • Þekking á gagnavinnslu og uppsetningu.

  • Þekking á uppsetningu veflausna (ESRI).

Persónubundnir þættir:

  • Þarf að hafa frumkvæði og að geta unnið sjálfstætt.

  • Lausnarmiðuð hugsun.

  • Geta til að koma upplýsingum og gögnum á framfæri á skýran hátt.

  • Skilvirkt samstarf við hagsmunaaðila, samstarfsfólk og stofnanir.

  • Góðir samskiptahæfileikar og reynsla af því að vinna sem hluti af hóp.

  • Góðir skipulagshæfileikar og sveigjanleiki.

Gott að hafa:

  • Reynsla af vinnslu flygildagagna.

  • Þekking á fjarkönnun.

  • Vefhönnun/forritun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

  • Sótt er um starfið á Starfatorgi.

  • Umsóknarfrestur er til 6. maí 2024.

Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.

Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum. Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmætasköpun innan Lands og skógar og alls landgræðslu- og skógræktargeirans.

Land og skógur hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og Græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

  • Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

  • Starfshlutfall er 100%

  • Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024

Nánari upplýsingar veita

Sækja um á Starfatorgi

Land og skógur

Hafðu samband

Netfang: landogskogur@landogskogur.is
Símanúmer: 470 2000
Símanúmer: 488 3000

Aðalskrif­stofa

Kennitala: 671123-0850