Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Lagakeppni Skógardagsins mikla

16. maí 2024

Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi á 20. ára afmæli í ár. Af því tilefni hefur verið efnt til lagakeppni. Frestur til að skila lögum inn í keppnina er til 25. maí.

Skógardagurinn mikli - hluti veggspjalds

Dómnefnd keppninnar velur tíu lög sem keppa í handahófskenndri röð til undanúrslita síðdegis föstudaginn 21. júní í Hallormsstaðaskógi, daginn fyrir sjálfan Skógardaginn mikla.

Miðað er við að höfundum þeirra tíu laga sem dómnefnd velur verði tilkynnt ekki síðar en 3. júní að þau lög verði flutt í undanúrslitunum.

Áheyrendur velja þrjú lög af þessum tíu til úrslita. Þau lög verða flutt á Skógardeginum mikla 22. júní og keppa þar til úrslita. Höfundar sjá um flutning á lögum sínum og verðlaun verða veitt fyrir þrjú bestu lögin.

Hugmyndin er að sjálft sigurlagið geti orðið einkennislag Skógardagsins mikla. Skógardagurinn öðlast flutnings- og afnotarétt af laginu en höfundur heldur höfundarrétti sínum að öðru leyti.

Þátttökureglur

Lög sem send eru í keppnina skulu vera:

  • frumsamin, bæði lag og texti

  • að hámarki þrjár og hálf mínúta að lengd

Skil á lögum í keppnina:

Nánari upplýsingar:

Bergrún Arna Þorsteinsdóttir
sími: 892 3523
netfang: begga@logs.is

Veggspjald fyrir lagakeppni Skógardagsins mikla