Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Konunglegur askur

23. september 2026

Tré ársins 2026 hjá Skógræktarfélagi Íslands er askur sem Haraldur, þá krónprins Norðmanna, gróðursetti árið 1967 þegar rannsóknarstöð skógræktar var formlega opnuð á Mógilsá undir Esjuhlíðum. Askurinn hefur þrifist vel síðan og er með myndarlegri trjám af þeirri tegund hér á landi. Útnefningin er til minningar um Harald V. Noregskonung sem lést nýverið.

Við athöfnina á Mógilsá, talið frá vinstri: Auður Kjartansdóttir SR, Marianne Kvan sendiráðsfulltrúi, Ágúst Sigurðsson LOGS, Sverrir Bollason SÍ, og Jóhannes Benediktsson SR.

Skógurinn á Mógilsá er þjóðskógur sem Land og skógur ber ábyrgð á fyrir hönd ríkis og þjóðar. Því tók Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, við heiðursskjali um tré ársins þegar askurinn var útnefndur við hátíðlega athöfn í gær, þriðjudaginn 22. september.

Árið 1961 kom Ólafur V. Noregskonungur hingað til lands færandi hendi. Afhenti hann Íslendingum þjóðargjöf Norðmanna sem þakklætisvott fyrir hjálp þeirra við Noreg á stríðsárunum. Skyldi þjóðargjöfin renna til skógræktar og framgangs hennar í landinu. Ákveðið var að mestum hluta gjafarinnar skyldi varið til þess að reisa rannsóknarstöð fyrir skógrækt en það sem afgangs yrði skyldi styrkja tengsl norskrar og íslenskrar skógræktar, meðal annars með ferðum ungs fólks milli landanna til skógræktarstarfa og einnig gagnkvæmum heimsóknum skógræktarfólks.

Askurinn (Fraxinus excelsior) sem Haraldur krónprins gróðursetti þegar stöðin á Mógilsá var tekin í notkun hefur vaxið vel eins og kom í ljós við mælingu sem var hluti af dagskrá athafnarinnar þegar tréð var útnefnt tré ársins. Tréð reyndist 15,1 metri á hæð og þvermál í brjósthæð 30 sentímetrar.

Við athöfnina voru flutt nokkur ávörp en athöfnin hófst með því að fulltrúi frá sendiráði Norðmanna á Íslandi, Marianne Kvan, afhjúpaði skilti um tréð ásamt Söru Hafbergsdóttur frá Lambhaga sem er bakhjarl Trés ársins. Tindatríóið skipað feðgunum Atla Guðlaugssyni og Bjarna og Guðlaugi Atlasonum flutti tónlist og veitingar voru í boði Skógræktarfélags Íslands og Lambhaga. Meðfylgjandi myndir eru frá Ágústi Sigurðssyni.