Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Ísland með hliðarviðburð á COP17 í Mongólíu

11. september 2026

Ísland stóð fyrir viðburði á nýafstöðnu þingi Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna. Þar var varpað ljósi á hvernig samstarf, þekking, þjálfun og fagleg tengsl geta stuðlað auknum viðnámsþrótti samfélaga og vistkerfa en einnig varanlegum árangri í endurheimt landgæða. Hlutverk Íslands er ekki einungis að miðla af þekkingu sinni og reynslu á þessu sviði heldur getum við líka lært af öðrum.

Fulltrúar Íslands á COP17 í Mongólíu frá vinstri: Jón Erlingur Jónasson, Boldoo Magvan, ræðismaður Íslands í Mongólíu, Þórunn W. Pétursdóttir og Guðrún Guðjónsdóttir. Ljósmynd: Boldoo Magvan

Sautjánda þing Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun, UNCCD COP17, fór fram í Ulaanbaatar í Mongólíu dagana 17. til 28. ágúst. Þar var sérstök áhersla lögð á sjálfbæra nýtingu beitilands. Íslendingar tóku virkan þátt í ráðstefnunni enda er Landgræðsluskóli GRÓ rekinn á Íslandi og námið þar byggt á því að þjálfa fólk í endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu.

Beitilönd eru mikilvæg vistkerfi í Mongólíu og víðar. Óvíða er mikilvægara en á slíkum svæðum að nýtingin sé sjálfbær og málefni beitilanda tengjast óneitanlega ýmsum viðfangsefnum sem snerta landeyðingu, eyðimerkurmyndun og ýmis viðfangsefni í sjálfbærri landnýtingu. Þannig snertir starf Landgræðsluskóla GRÓ markmið UNCCD-samningsins með beinum hætti, að sögn Guðrúnar Guðjónsdóttur, starfandi forstöðumanns skólans. Guðrún sótti ráðstefnuna ásamt Boldoo Magvan, ræðismanni Íslands í Mongólíu, Þórunni Pétursdóttur, yfirmanni skrifstofu Global Soil Partnership hjá FAO, matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, í Róm, Salóme Hallfreðsdóttur, sérfræðingi í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, og Jóni Erlingi Jónassyni, sérstökum sendifulltrúa í utanríkisráðuneytinu.

Guðrún segir að hliðarviðburðurinn sem Landgræðsluskóli GRÓ hélt á ráðstefnunni hafi snúist um hvernig samstarf, þekking, þjálfun og fagleg tengsl geta stuðlað að varanlegum árangri í endurheimt landgæða og auknu viðnámsþoli samfélaga og vistkerfa. Viðburðurinn var haldinn ásamt rannsóknarmiðstöðinni Green Gold–Mongolian Rangeland Research Centre, með stuðningi utanríkisráðuneytisins og umhverfisráðuneytisins.

Á myndinni hér að neðan má sjá tvo fyrrverandi nemendur Landgræðsluskólans GRÓ, þær Burmaa Dashbal og Sumjidmaa Sainnemekh, sem héldu erindi á hliðarviðburðinum í Ulaanbataar.

Viðburðurinn endurspeglaði það langa og farsæla samstarf sem hefur verið í þessum málum með Íslandi og Mongólíu. Mongólía er eitt af mikilvægustu samstarfsríkjum Landgræðsluskólans, segir Guðrún, og samstarfið hefur staðið í nær tvo áratugi. Þaðan hafa 44 sérfræðingar lokið námi við skólann og miðlað þekkingu sinni heima að námi loknu. Guðrún segir þetta sýna hvernig íslensk þekking hefur ekki aðeins verið „flutt út“, heldur þróast í langtímasamstarfi, gagnkvæmri uppbyggingu þekkingar og getu beggja aðila.

Í erindunum sem fyrrverandi nemarnir tveir við skólann fluttu á hliðarviðburðinum kom skýrt fram hve mikilvægur félagslegi þátturinn er í endurheimt vistkerfa. Horfa þurfi til samfélaganna sem byggja afkomu sína á landinu og hafa tengsl við það. Endurheimt snúist ekki aðeins um að planta trjám, heldur um að skapa þær félagslegu og vistfræðilegu aðstæður sem gera vistkerfum kleift að ná sér á strik. Langtímarannsóknir og vöktun skipti jafnframt sköpum til að meta árangur, styðja við góða ákvarðanatöku og auka viðnámsþrótt vistkerfa og samfélaga.

Jafnvel þótt Ísland gegni mikilvægu hlutverki við að miðla af reynslu sinni í landgræðslumálum getum við um leið lært af reynslu annarra landa, segir Guðrún, meðal annars reynslu Mongólíu af sjálfbærri landnýtingu og samspili vistkerfa og samfélaga. Langtímasamstarf af þessu tagi geti því skapað gagnkvæman ávinning og styrkt bæði faglega getu og árangur í endurheimt vistkerfa.

Á lokadegi COP17 í Ulaanbaatar var samþykkt einróma að Egyptaland skyldi taka við gestgjafahlutverkinu. Næsta aðildarríkjaþing Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD COP18) verður haldið í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi árið 2028. Nákvæmar dagsetningar verða gefnar út síðar.

Fólkið sem stóð að hliðarviðburðinum á COP17 ásamt fyrrverandi nemendum Landgræðsluskóla GRÓ. Ljósmyndir: Boldoo Magvan