Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Hvatningarverðlaun afhent á alþjóðlegum degi skóga

19. mars 2026

Hvatningaverðlaun skógræktar 2026 verða formlega veitt við hátíðlega athöfn í Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi á alþjóðlegum degi skóga, laugardaginn 21. mars kl. 15.30.

Verðlaunin verða nú afhent í þriðja sinn. Þau eru veitt árlega einstaklingum, hópum, fyrirtækjum, félögum eða stofnunum sem unnið hafa óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Markmið með afhendingu þeirra er að hvetja skógræktarfólk til áframhaldandi starfa og vekja athygli á því margþætta góða skógarstarfi sem unnið er að um land allt.

Að verðlaununum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (búgreinadeild skógarbænda).

Um alþjóðlegan dag skóga, 21. mars

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýsti 21. mars alþjóðlegan dag skóga á sínum tíma til að vekja athygli á mikilvægi hvers kyns skóga og trjáa utan skóglendis. Skógar og efnahagur er þema dagsins í ár og með því er vakin athygli á mikilvægi skóga fyrir sjálfbær og víðtæk hagkerfi. Skógar styðja við lífsviðurværi, skapa atvinnu, draga úr fátækt og styrkja fæðukerfi fyrir milljarða manna um allan heim. Auk starfa og lífsviðurværis gegna skógar hlutverki sem efnahagslegir innviðir – þeir veita nauðsynlega vistkerfisþjónustu, til dæmis vatnsöryggi og jarðvegsvernd. Slíkt styrkir meðal annars framleiðni í landbúnaði, orkugeiranum, iðnaði og þéttbýlissamfélögum.

Myndband alþjóðlegs dagskskóga 2026 er aðgengilegt með íslenskum texta:

Alþjóðlegur dagur skóga 2026: Skógarnir og hagkerfin – Skógar tákna tækifæri