Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Hlustið á vísindin og hefjist handa!

2. júlí 2024

Í Stokkhólmsyfirlýsingunni sem samþykkt var á nýafstöðnu heimsþingi IUFRO er heimsbyggðin eindregið hvött til að grípa til aðgerða gegn loftslagsbreytingum, minnkandi líffjölbreytni, hnignun vistkerfa, mengun umhverfis og vaxandi misrétti í samfélaginu. Framsýnna langtímamarkmiða sé þörf. Sérstaklega er bent á mikilvægi skóga, trjáa og skógarafurða á leið til sjálfbærni og hagsældar í framtíðinni.

Fulltrúar IFSA við merki ráðstefnunnar

Tuttugasta og sjötta heimsráðstefna IUFRO, alheimssamtaka skógvísindastofnana, fór fram í Stokkhólmi 23.-29. júní. Alls voru þátttakendur 4.271 talsins frá 102 löndum. Ráðstefnan skapar alþjóðlegan vettvang fyrir fólk öllum greinum sem tengjast skógum og skógvísindum til að miðla þekkingu og skiptast á sjónarmiðum. Einnig gefur ráðstefnan ungu fólki færi á að leggja sitt til málanna en einnig fólki úr stjórnmálum og stjórnsýslu, forystufólki í skógargeiranum, fulltrúum fyrirtækja og stofnana og fulltrúum frjálsra félagasamtaka. Fulltrúar frá Íslandi voru átta talsins, þar af fimm frá Landi og skógi.

Heimsráðstefna IUFRO fer fram á fjögurra til fimm ára fresti og þar er gefin út yfirlýsing í samræmi við meginviðfangsefni ráðstefnunnar hverju sinni sem nú var skógar og samfélag til 2050. Í yfirlýsingunni sem samþykkt var í lok ráðstefnunnar á laugardag er heimsbyggðin eindregið hvött til að grípa til aðgerða gegn loftslagsbreytingum, minnkandi líffjölbreytni, hnignun vistkerfa, mengun umhverfis og vaxandi misrétti í samfélaginu. Langtímamarkmiða sé þörf.

Fjögur áhersluefni yfirlýsingarinnar

Í yfirlýsingunni eru fjögur atriði tiltekin sérstaklega sem heimsþingið telur skipta sköpum svo tryggja megi framtíð skógarvistkerfa og þar með farsæld fólks um allan heim. Í þessum atriðum felist leiðsögn til forystufólks um þær breytingar sem nauðsynlegar séu á leið til sjálfbærrar framtíðar.

  • Að styrkja seiglu og viðnámsþrótt skóga og aðlögun þeirra að loftslagsbreytingum.

  • Að viðhalda og styrkja félagsleg verðmæti skóga í þágu sjálfbærra samfélaga.

  • Að víkka út hlutverk skóga og skógarafurða í ábyrgu hringrásarkerfi sem ýtir undir efnahagsþróun, lífsafkomu fólks, hamlar gegn loftslagsbreytingum og stuðlar að kolefnishlutlausu efnahagslífi.

  • Að þróa skógartengd vísindi til framtíðar.

Timbur leysi önnur efni af í byggingum

Sérstaklega er bent í yfirlýsingunni á mikilvægi skóga, trjáa og skógarafurða á leið til sjálfbærni og hagsældar í framtíðinni. Um leið er minnt á að skógarnir hafi ekki að geyma allsherjarlausn á umhverfis- og loftslagsvandanum og að skógarnir séu sjálfir í hættu ef ekki tekst að grípa til róttækra aðgerða á öðrum sviðum samfélags og mannlegra athafna.

á ráðstefnunni var ekki síst mikil áhersla lögð á mikilvægi þess að skipta yfir í timbur og aðrar skógarafurðir sem byggingarefni með sívaxandi þéttbýlismyndun. Þetta kom vel fram í innblásinni ræðu Hans Joachims Schellnhubers prófessors á lokadegi ráðstefnunnar. Hann ræddi um uppbyggingu bæja og borga sem fílinn í sjálfbærniherberginu. Þar væru umskiptin frá mengandi efnum eins og stáli, steinsteypu og jarðefnaeldsneyti yfir í timbur afgerandi þáttur í loftslagsbaráttunni.

Hans Joachim Schellnhuber um fílinn í sjálfbærniherberginu

Ógnir sem steðja að umhverfinu og vísindunum

Undirstrikað er í yfirlýsingunni að líta þurfi til allra þriggja meginþátta sjálfbærni, hins vistfræðilega, efnahagslega og samfélagslega, og móta stefnu í sameiningu. Sérstaklega er minnt á mikilvægi rannsókna og þekkingar í skógvísindum en einnig þekkingar innan samfélaga sem saman geti mótað vegvísi fyrir almenning og leiðtoga inn í framtíðina.

Minnt er á mikilvægi samstarfs og samtals milli ólíkra greina og sviða. Vinna þurfi gegn ógnum sem steðja að vísindum og rannsóknarsamstarfi með minnkandi trausti til vísindastofnana, dreifingu rangra eða villandi upplýsinga, óábyrgri notkun tækni, skorti á víðtæku samstarfi og átökum sem nú geisa landa í milli.

Aðkallandi málefni

Stokkhólmsyfirlýsingin endurspeglar ýmis viðfangsefni sem voru áberandi á ráðstefnunni sem lauk á laugardag. Mikið var rætt um dvínandi líffjölbreytni og viðbrögð við henni, kynjajafnrétti og almenn réttindi fólks og samfélaga. Einnig var áberandi í dagskránni virkur flutningur erfðaefnis trjátegunda til aðlögunar, sem á ensku kallast assisted migration, og getur víða skipt sköpum til að svæði haldist skógi vaxin þegar meðalhiti hækkar. Svokölluð samfelluskógrækt var einnig mikið í umræðunni, þar sem leitast er við að nytjaskógar verði misaldra frekar en jafnaldra og einnig samsettir úr mörgum trjátegundum frekar en einni eða tveimur. Í tengslum við það var mikið fjallað um þær aðferðir sem þarf til að nytja slíka skóga.

Skref að jafnræði kynjanna

Í lokaræðu sinni á ráðstefnunni sendi John Parrota, fráfarandi forseti IUFRO, ákall til heimsbyggðarinnar um markvissar, sanngjarnar aðgerðir sem byggðar væru á bestu fáanlegu þekkingu vísindasamfélagsins um allan heim svo taka mætti upplýstar ákvarðanir af framsýni. við Parotta tekur nú fyrsta konan sem gegnir embætti forseta IUFRO, Daniela Kleinschmit, prófessor við háskólann í Freiburg í Þýskalandi. Þetta markar tímamót í skógvísindum og endurspeglar vaxandi hlutverk kvenna í skógargeiranum. Á nýafstöðnu heimsþingi IUFRO voru 44% fulltrúanna konur, flestar undir fertugu, sem bendir til jákvæðrar þróunar í átt að raunverulegu kynjajafnvægi og fjölbreytileika í forystu skógarmála.

Samandregið eru skilaboð IUFRO-heimsráðstefnunnar 2024 þessi: Hlustið á vísindin og hefjist handa!

Veggspjald um Land og skóg í sýningarbás SNS