Grunnnámskeið í skógrækt
28. september 2026
Vel heppnað grunnnámskeið í skógrækt fór fram í Gömlu-Gróðrarstöðinni á Akureyri í síðustu viku. Námskeiðið var vel sótt og auk bóklegra þátta fór fram útikennsla að Reykhúsum í Eyjafjarðarsveit.

Hópur nemenda á námskeiðinu ásamt leiðbeinendunum Rositu, Johan og Guðríði. Þriðji leiðbeinandinn, Sigríður Hrefna Pálsdóttir, tók myndina.
Fræðsla og upplýsingamiðlun er mikilvægur hluti skógræktarstarfsins. Ekki má heldur vanmeta mikilvægi þess að hittast, skiptast á skoðunum og kynnast hvað aðrir eru að brasa í skógrækt sinni. Hluti af starfi skógarbóndans er að sækja grunnnámskeið í skógrækt sem Land og skógur heldur reglulega fyrir bændur sem eru að hefja skógrækt. Einnig færist nú í vöxt að nýir skógarbændur taki við eldri skógum og fyrir þá er slíkt námskeið kærkomin endurmenntun.
Skógarbændur sem sækja grunnnámskeið fá bæði bóklega og verklega kennslu. Í seinni tíð hefur verið lögð aukin áhersla á verklega þáttinn enda getur ekkert komið í stað praktískrar kennslu og upplýsingamiðlunar úti í náttúrunni. Aðgengi að góðum fræðslupplýsingum á netinu er aftur á móti mikið og auðveldara að nálgast þær hvenær sem er.

Á grunnnámskeiðinu fara skógfræðingar gegnum helstu þætti nýskógræktar svo sem áætlanagerð og skipulag, undirbúning skógræktarlands, helstu trjátegundir, meðferð og gæði skógarplantna, gróðursetningu, áburðargjöf, framkvæmdaskráningar og árangursmat.
Að lokinni bóklegri kennslu á námskeiðinu í síðustu viku tók við útikennsla. Henni lauk með skógarrölti um Reykhúsaskóg í Eyjafjarðarsveit þar sem skoðaðir voru möguleikar á ýmiss konar nýtingu skógarins, svo sem eldiviðarvinnslu og kurlun, en einnig möguleikar á nýtingu skógar til útivistar. Í lokin var dáðst að ungum eikartrjám í uppvexti.
Meðfylgjandi myndir tóku skógfræðingarnir Guðríður Baldvinsdóttir, Sigríður Hrefna Pálsdóttir og Rosita Keskinen. Þær voru leiðbeinendur á námskeiðinu auk Johans Holst.

