Grænbók um nýja landsáætlun í landgræðslu og skógrækt komin í samráðsgátt
23. október 2026
Nú stendur yfir endurskoðun landsáætlunarinnar sem kom út undir heitinu Land og líf árið 2022 og stefnt að því að gefa út nýja landsáætlun til ársins 2036 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2027-2031. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun er útgáfa grænbókar um stöðu mála og árangurinn af núverandi stefnu. Grænbókin er nú komin í umsagnarferli í samráðsgátt stjórnvalda og er öllum frjálst að gera athugasemdir við hana fram til 4. desember.

Í grænbók um landgræðslu og skógrækt er lagður grunnur að umræðu um stöðu málaflokksins, framkvæmd gildandi landsáætlunar og helstu viðfangsefni næstu ára.
Samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018 og lögum um skóga og skógrækt nr. 33/2019 skal ráðherra gefa út landsáætlun um landgræðslu og skógrækt til tíu ára í senn. Í landsáætlun skal meðal annars fjalla um vernd og endurheimt vistkerfa, jarðvegsvernd, sjálfbæra landnýtingu, skógrækt og hvernig nýting lands styður við atvinnu og byggðir.
Landsáætlun til 2036
Gildandi landsáætlun í landgræðslu og skógrækt, Land og líf, var gefin út árið 2022 og gildir til ársins 2031. Samhliða henni var gefin út aðgerðaáætlun fyrir árin 2022-2026. Nú stendur yfir endurskoðun landsáætlunarinnar og er stefnt að nýrri landsáætlun til ársins 2036 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2027-2031.
Grænbókin er fyrsti áfangi endurskoðunarinnar. Í henni er lagt mat á stöðu málaflokksins, framkvæmd gildandi landsáætlunar, framgang aðgerða og helstu úrlausnarefni. Jafnframt eru dregin fram möguleg lykilviðfangsefni til næstu ára og kynnt drög að framtíðarsýn, áherslum og leiðum til umræðu.
Samráð nýtt við gerð hvítbókar
Tilgangur samráðsins er að gefa almenningi, hagaðilum og öðrum áhugasömum tækifæri til að koma á framfæri sjónarmiðum um stöðumat grænbókarinnar og þau lykilviðfangsefni, áherslur og leiðir sem þar eru settar fram. Sérstaklega er kallað eftir ábendingum um hvort stöðumatið endurspegli stöðu málaflokksins, hvort lykilviðfangsefni næstu ára séu vel skilgreind og hvaða áherslur og leiðir séu mikilvægar til framtíðar.
Að loknu samráði um grænbókina verður unnið úr umsögnum og niðurstöður samráðsins nýttar við gerð hvítbókar með drögum að framtíðarsýn, markmiðum og áherslum nýrrar landsáætlunar. Gert er ráð fyrir frekara samráði við gerð hvítbókarinnar, meðal annars með samráðsfundum, áður en mótuð verður endanleg landsáætlun ásamt aðgerðaáætlun.
Frestur til að senda athugasemdir um grænbókina rennur út 4. desember.
