Fræðist um jarðveg í bás Lands og skógar á Vísindavöku
22. september 2026
Jarðvegur sem undirstaða lifandi vistkerfa verður þema Lands og skógar á Vísindavöku 2026 sem fram fer í Laugardalshöll laugardaginn 26. september milli kl. 12 og 17.

Gestir Lands og skógar á Vísindavöku fá að þessu sinni að skoða ólíkar jarðvegsgerðir, plöntur, sveppi og smádýr, bæði með berum augum og í víðsjá. Sýnt verður hvernig jarðvegur mótar búsvæði og lífríki og hvernig endurheimt vistkerfa sem byggð er á vísindalegri þekkingu, mælingum og vöktun getur byggt upp og styrkt líffræðilega fjölbreytni í þeim margvíslegu gróðurvistkerfum sem er að finna á Íslandi.
Sérfræðingar Lands og skógar taka á móti gestum og fræða í bás stofnunarinnar á Vísindavöku. Rannís skipuleggur Vísindavöku á Íslandi í samstarfi við íslenska háskóla og stofnanir. Sambærilegir viðburðir fara fram samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í september ár hvert og ganga undir alþjóðlega heitinu Researchers' Night.
Alls staðar er markmiðið með þessum viðburðum að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í samfélagi nútímans. Þetta er gert með lifandi kynningum og leitast við að bjóða upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna þar sem upplifun er snar þáttur í kynningunni. Engin vísindagrein er Vísindavöku óviðkomandi og þar má því finna sitt af hverju úr heimi hugvísinda sem raunvísinda. Dagskráin er fjölbreytt og þarna má finna vísindakaffi, vísindaslamm, vísindamiðlun og margt fleira.
Verið velkomin í bás Lands og skógar á Vísindavöku!

Frá bás Lands og skógar á Vísindavöku 2024.
