Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Endurskoðun landbótaáætlana í tengslum við innleiðingu reglugerðar um sjálfbæra landnýtingu

26. júní 2026

Hjá Landi og skógi er nú unnið að innleiðingu reglugerðar númer 670/2024 um sjálfbæra landnýtingu. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að landnýting sé sjálfbær í samræmi við markmið laga um landgræðslu, það er taki mið af ástandi lands og stuðli ekki að hnignun.

Sauðfé í haga. Ljósmynd: Sigþrúður Jónsdóttir

Reglugerðin nær til fjögurra flokka landnýtingar, beitar, akuryrkju, framkvæmda og umferðar fólks og ökutækja. Sett eru fram viðmið fyrir hvern flokk og hvernig meta skuli hvort landnýting teljist sjálfbær.

Einn mikilvægur hluti innleiðingarinnar snýr að gerð landbótaáætlana, en í þeim tilvikum sem landnýting telst ekki sjálfbær leiðbeinir Land og skógur eiganda eða rétthafa lands um gerð slíkrar áætlunar. Þar þurfa meðal annars að koma fram upplýsingar um landið, nýtingu þess, fyrirhugaðar landbótaaðgerðir og hvernig árangur verður metinn.

Athygli er vakin á því að þær landbótaáætlanir sem nú eru í gildi, meðal annars í tengslum við gæðastýringu í sauðfjárrækt, þarf samkvæmt reglugerðinni að endurskoða fyrir 31. desember 2026. Forgangsverkefni Lands og skógar er því að greina hvar þörf er á endurskoðun eða endurnýjun þessara áætlana eða hvort nýting á þessum svæðum teljist nú sjálfbær. Við greininguna er byggt á bestu fáanlegu gögnum um ástand lands, meðal annars fjarkönnunargögnum, gervitunglamyndum, gögnum úr rannsóknum Grólindarverkefnisins og nánari vettvangsskoðunum þar sem þörf er á.

Land og skógur leggur ríka áherslu á gott samráð í gegnum allt ferlið, þannig að eigendur, rétthafar og aðrir hagaðilar fái tækifæri til að koma upplýsingum og sjónarmiðum á framfæri. Haft verður samband við hlutaðeigandi aðila á næstu mánuðum.

Að lokinni yfirferð á gildandi landbótaáætlunum verður unnið áfram að mati á sjálfbærri landnýtingu á öðrum svæðum landsins.