Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Björgvin Örn hlaut Hvatningarverðlaun skógræktar

27. mars 2026

Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógi, afhenti Hvatningaverðlaun skógræktar 2026 við hátíðlega athöfn í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á alþjóðlegum degi skóga 21. mars. Verðlaunin hlaut Björgvin Örn Eggertsson, sem hefur um árabil unnið ötullega að þekkingar- og fræðslumálum í þágu skógræktar.

Frá afhendingunni. F.v. Hjörtur Bergmann Jónsson BÍ , verðlaunahafinn Björgvin Eggertsson, Hreinn Óskarsson LOGS, Ragnhildur Freysteinsdóttir SÍ og Sólrún Þórðardóttir BÍ. Ljósm: Hrefna Einarsdóttir

Verðlaunin voru nú afhent í þriðja sinn. Þau eru veitt árlega einstaklingum, hópum, fyrirtækjum, félögum eða stofnunum sem þykja hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Þetta eru ekki heiðursverðlaun heldur er markmið með afhendingu þeirra að hvetja skógræktarfólk til áframhaldandi starfa og vekja athygli á því margþætta góða skógarstarfi sem unnið er að um land allt.

Auglýst var eftir tilnefningum að verðlaununum í janúar. Alls bárust tilnefningar að 32 aðilum og valdi dómnefnd þrjá sem efnt var til kosningar um á vefnum. Björgvin Örn Eggertsson hlaut flest atkvæði í þeirri kosningu.

Athöfnin á Reykjum hófst á því að Ragnhildur Freysteinsdóttir, fulltrúi Skógræktarfélags Íslands, bauð gesti velkomna. Því næst tók Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga, landa og innviða hjá Landi og skógi, við og afhenti Björgvini verðlaunin formlega. Fékk Björgvin verðlaunagrip til eignar, skál úr íslenskum reyniviði eftir rennismiðinn og plöntulífeðlisfræðinginn Jón Guðmundsson.

Björgvin hefur starfað við skógrækt alla sína starfsævi, bæði nýskógrækt en ekki síst hefur hann einbeit sér að umhirðu uppvaxandi og eldri skóga. Hann stýrir endurmenntun á fagsviði skógræktar í Garðyrkjuskólanum og þar hefur hann haldið utan um námskeiðaröðina Grænni skóga I og II frá árinu 2007, sem hann þykir hafa gert af mikilli prýði. Hann hefur að auki séð um og kennt á fjölda annarra námskeiða á fagsviði sínu og miðlað ötullega af reynslu sinni og þekkingu. Hann hefur tekið þátt í og stýrt fjölda samstarfsverkefna með öðrum stofnunum innanlands sem utan sem hafa stuðlað að aukinni þekkingu innan skógargeirans. Meðal námskeiða sem Björgin kennir reglulega eru námskeið um grisjun og trjáfellingu með keðjusög, enda mjög mikilvægt að slík verk séu ekki unnin nema fólk hafi hlotið þjálfun og fræðslu, ekki síst um öryggismál og varnir gegn slysum.

Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (búgreinadeild skógarbænda) standa saman að Hvatningarverðlaunum skógræktar sem eru öðrum þræði viðleitni Íslendinga til að vekja athygli á alþjóðlegum degi skóga 21. mars, þótt fyrst og fremst séu þau ætluð til að hvetja duglegt fólk til frekari dáða á sviði skógræktarmála.

Á meðfylgjandi myndum má sjá verðlaunahafa ársins, Björgvin Örn Eggertsson, ásamt fulltrúum aðstandenda Hvatningarverðlauna skógræktar, Hirti Bergmann Jónssyni frá Bændasamtökum Íslands, Hreini Óskarssyni frá Landi og skógi, Ragnhildi Freysteinsdóttur frá Skógræktarfélagi Íslands og Sólrúnu Þórðardóttur frá Bændasamtökum Íslands.

Viðtal við Björgvin Örn í Bændablaðinu

Björgvin Örn Eggertsson, handhafi Hvatningarverðlauna skógræktar 2026, með verðlaunagripinn, skál úr íslenskum reyniviði eftir Jón Guðmundsson. Ljósmynd: Ragnhildur Friðriksdóttir