Birkiráðstefna NordGen Forest í haust
8. maí 2025
Birki í brennidepli við endurheimt skóga er viðfangsefni árlegrar ráðstefnu skógasviðs norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar NordGen sem haldin verður á Hellu 17.-18. september. Dagskrá ráðstefnunnar hefur nú verið auglýst og skráning stendur yfir.

NordGen heldur árlega eina ráðstefnu um skógarmál í einhverju norrænu ríkjanna með því markmiði að leiða saman fagfólk og rannsakendur hvaðanæva af Norðurlöndunum sem fást við endurnýjun trjáttegunda og efnivið til endurnýjunar skóga. Nú er röðin komin að Íslandi og verður Land og skógur gestgjafi ráðstefnunnar ásamt NordGen. Að þessu sinni verður birki í brennidepli og tegundin skoðuð frá ýmsum sjónarhornum sem snerta erfðaauðlindir skóga og birki í skógrækt. Auk fjölbreyttra erinda verður veggspjaldasýning, sameiginlegur kvöldverður og skipulögð skoðunarferð á Þórsmörk. Ráðstefnan fer fram á ensku með yfirskriftinni „Birch at the heart of reforestation“. Skráningu lýkur 1. júlí.
Hagnýtar upplýsingar
Gisting: Ráðstefnan fer fram á Stracta Hotel á Hellu og óskir um bókun eru sendar á netfangið info@stractahotels.is. Með þarf að fylgja eftirfarandi texti (ásamt upplýsingum um hvort óskað er eftir einstaklingsherbergi eða tveggja manna): „Ég óska eftir að bóka herbergi í hópbókun Lands og skógar 16.-18. september undir bókunarnúmerinu 59237319.“
Markhópur og kostnaður: Þátttaka á ráðstefnunni er ókeypis. Hún hentar sérstaklega fólki sem starfar við skógrækt og endurnýjun skóga, efnivið til skógræktar, trjákynbætur og skógerfðafræði, hvort sem það er hjá rannsóknarstofnunum, í stjórnsýslunni eða hjá fyrirtækjum. Námsfólk með áhuga á þessum málefnum er líka sérstaklega hvatt til að koma.
Ferðir: Rútur verða í boði milli BSÍ í Reykjavík og Hellu 16. og 18. september og í skoðunarferðina. Við skráningu þarf að merkja við hvort taka skuli frá sæti.
Veggspjaldasýning: Ef óskað er aðl leggja veggspjöld til ráðstefnunnar, vinsamlegast sendið veggspjöld ásamt netfangi tengiliðar fyrir 15. ágúst á forest@nordgen.org.
Þátttaka á vefnum: Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í streymi.
Skráning: Fjöldi þátttakenda á ráðstefnunni er takmarkaður svo vissara er að skrá sig tímanlega. Síðasti skráningardagur er fyrsti júlí.
Skipuleggjendur: Ráðstefnan er skipulögð í samvinnu Lands og skógar við NordGen
Dagskrá
Miðvikudagur 17. september á Stracta Hotel, Hellu
08.30-09.00 Kaffi og skráning
09.00-09.10 Ingangsávarp, Ágúst Sigurðsson (forstöðumaður Lands og skógar)
09.10-09.20 Kveðja frá NordGen, Lene Krøl Andersen (framkvæmdastjóri NordGen)
09.20-09.50 Birch in Northern Europe. From Breeding to Forest Management – A Nordic and Baltic Perspective, (Birki í Norður-Evrópu, frá kynbótum til skógstjórnar) Emma Holmström (prófessor, SLU, Svíþjóð)
09.50-10.10 Natural colonization as a means to upscale restoration of subarctic woodlands in Iceland (Náttúruleg útbreiðsla sem aðferð til endurheimtar norðlægs skóglendis á Íslandi), Anna M. Behrend, (doktorsnemi, Danmörku og Íslandi)
10.10-10.30 Birch indoor seed orchard (Innanhússfrægarður birkis) Mikko Pulkkinen (forstjóri Siemen Forelia, Finnlandi)
10.30-10.50 Kaffi
10.50-11.20 Operational breeding of silver birch in Sweden – status and prospects for future (Verklegar kynbætur hengibjarkar í Svíþjóð – staða og horfur til framtíðar), Dr. Mateusz Liziniewicz (vísindamaður hjá Skogforsk, Svíþjóð)
11.20-11.40 Early flowering in birch to increase gain in breeding (Snemmbúin blómgun birkis til aukins árangurs í kynbótum), Giovanni Bozza (doktorsnemi, Trees for Me, Svíþjóð)
11.40-12.00 Experience and results from birch breeding based on indigenous B. pubescence and wide species crossings (Reynsla og árangur birkikynbóta með innlendri ilmbjörk og víðtækum víxlunum, (Þorsteinn Tómasson)
12.00-12.10 Umræður
12.10-13.00 Hádegisverður
13.00-13.30 Starting up a breeding program for silver birch in Norway - establishment of seed sources and breeding population (Að hefja kynbótaverkefni með hengibjörk í Noregi – komið upp fræuppsprettum og kynbótaefniviði), Mari Kjos (plöntukynbótasérfræðingur, Skogfrøverket, Noregi)
13.30-13.50 Soil carbon stocks of regenerating Icelandic native birch woodlands (Kolefnisforði á nýjum útbreiðslusvæðum íslensks birkis) Sólveig Sanchez (doktorsnemi LbhÍ)
13.50-14.10 Diversity of fungi in succession stages of birch forests in Iceland (Sveppafjölbreytni á stigum endurnýjunar í íslenskum birkiskógum), Hilmar N. Þórðarson (Landi og skógi)
14.10-14.30 Pests and pathogens on birch in Iceland (Sjúkdómar og skaðvaldar á birki á Íslandi), Brynja Hrafnkelsdóttir og Helga Ösp Jónsdóttir (Landi og skógi)
14.30-15.00 Kaffi
15.00-15.30 Quality production of birch (Gæðaframleiðsla á birki), Helge Hvoslef, (Noregi)
15.30-15.45 Variation in growth rate, adaptation, seed production and disease resistance among 49 natural populations of downy birch (Betula pubescens) on nine sites in Iceland (Breytilegur vöxtur, aðlögun, fræframleiðsla og vörn gegn sjúkdómum hjá 49 náttúrulegum kvæmum ilmbjarkar á níu stöðum á Íslandi), Aðalsteinn Sigurgeirsson (Landi og skógi)
15.45-16.00 The Mt. Hekla Woodland Project and the Fight Against Land Degradation. How a Large-Scale Reforestation Initiative Supports the Bonn Challenge (Hekluskógaverkefnið og baráttan við landeyðingu – framlag stórtæks endurheimtarverkefnis skóga til Bonn-áskorunarinnar), Berglind Guðjónsdóttir (Landi og skógi)
16.00-16.20 Kynning á skoðunarferð á Þórsmörk, Hreinn Óskarsson (Landi og skógi)
18.00-19.00 Veggspjaldakynning og tengslamyndun, blandað geði við fyrirlesara og aðra þátttakendur
19.00 Ráðstefnukvöldverður
Fimmtudagur 18. september
Rúta leggur af stað klukkan 9 frá Stracta-hótelinu áleiðis á Þórsmörk. Komið verður til baka um kl. 17. Nánari upplýsingar birtast á vefsíðu ráðstefnunnar með dagskrá skoðunarferðarinnar.