Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Birki nestað með moltu á Geitasandi

22. maí 2026

Gróðursett var birki í moltublandaðan sand í vikunni á svæði sem fyrirtækið Midgard hefur til umsjónar á Geitasandi á Rangárvöllum. Með moltunni og svolitlum tilbúnum áburði til viðbótar fær birkið meiri möguleika á að koma sér fyrir á sandinum og komast í vöxt.

Loftmynd af gróðursetningu á Geitasandi í maí 2026. Ljósmynd: Helga Lucie Andrée Káradóttir

Í samvinnu við Land og skóg efndu ferðaþjónustufyrirtækið Midgard á Hvolsvelli og Hidden Iceland til gróðursetningar á birkiplöntum í blíðuveðri fimmtudaginn 21. maí á rofnu svæði sem Midgard hefur tekið að sér til endurheimtar birkivistkerfis. Fyrirtækið vinnur áfram að því að græða upp þetta svæði á næstu árum og lokamarkmiðið er að endurheimta þar birkivistkerfi. Lúpína er í jaðri svæðisins en þar hefur að öðru leyti ekki verið unnið að uppgræðslu hingað til.

Birki gróðursett með Heklu í baksýn. Ljósmynd: Helga Lucie Andrée Káradóttir.

Tveir fulltrúar Lands og skógar, þær Helga Lucie Andrée Káradóttir og Hrefna Jensdóttir, aðstoðuðu við gróðursetninguna. Undanfarin tvö ár hefur starfsfólk Midgard gróðursett í lúpínu á svæðinu en að þessu sinni var breytt svolítið til og unnið á ógrónu landi. Grafnar voru holur og moltu blandað við jarðveginn, birkinu plantað í holuna og svolítill tilbúinn áburður settur með. Þetta er mikil handavinna en gekk mjög vel hjá hópnum. Aðferðin hefur meðal annars gefið góða raun við gróðursetningu birkis við svipuð jarðvegsskilyrði á Hólasandi.

Gróðursett var 1.341 planta í verkefni Midgard á Geitasandi í þetta skiptið. Flestar plönturnar voru gróðursettar eins og hér var lýst að framan, í holu með moltublöndu, en einnig var að hluta til gróðursett án moltu á jöðrum svæðisins þar sem gróður er til staðar.

Gróðursetningin var liður í sjálfbærnimánuði Midgard-fyrirtækisins. Þar fræðist starfsfólkið um umhverfismál og leggur sitt af mörkum í þágu náttúru og umhverfis. Auk verkefnisins á Geitasandi stóðu þau líka fyrir strandhreinsun.