Átak hafið í endurheimt votlendis á ríkisjörðum
2. október 2026
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hleypti í dag af stokkunum átaki í endurheimt votlendis, þegar hafist var handa við að loka framræsluskurðum á ríkisjörðinni að Sogni í Ölfusi. Nú í haust verða alls verða alls 225 hektarar votlendis endurheimtir á fimm ríkisjörðum og um 23 kílómetrum af framræsluskurðum lokað. Ef væntanleg endurheimtarverkefni næsta árs eru talin með lítur út fyrir að á þessu og næsta ári verði endurheimt meira votlendi en tekist hefur að endurheimta síðustu 30 ár á landinu.

Fulltrúar verktakans, Snilldarverks ehf., Lands og skógar og ráðuneytisins fagna ásamt ráðherra og forstöðumanni Lands og skógar að verkið sé hafið. Ljósmynd: Ísabella Ósk Másdóttir
Í frétt um viðburðinn á vef Stjórnarráðsins er bent á að endurheimt votlendis sé meðal forgangsaðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum sem kynntar voru í fyrra. Auk loftslagsávinnings skili þessi aðgerð einnig mikilvægum ávinningi fyrir náttúru og líffræðilega fjölbreytni.
Átak stjórnvalda í vernd og endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum er fimm ára samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Lands og skógar og Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Með samstarfinu eru jarðir í eigu ríkisins nýttar markvisst til að hrinda í framkvæmd stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni.
315 fótboltavellir
Framkvæmdirnar að Sogni marka upphaf þessa átaks stjórnvalda. Þar verða um 25 hektarar votlendis endurheimtir og lokað rúmlega fjórum kílómetrum af framræsluskurðum. Alls verða 225 hektarar endurheimtir á fimm ríkisjörðum í haust, sem jafngildir 315 fótboltavöllum. Í frétt Stjórnarráðsins er vitnað í Jóhann Pál sem rifjar upp að fyrir ári hafi hann sagst ætla að rjúfa kyrrstöðuna í endurheimt votlendis. Síðan hélt ráðherra áfram:
„Og í dag hefjast framkvæmdir. Nú hefjum við fyrstu framkvæmdirnar í nýju fimm ára átaki stjórnvalda um vernd og endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum. Við erum ekki komin saman til að kynna áform um eitthvað sem á að gerast einhvern tímann seinna. Við erum komin hingað til þess að láta verkin tala.“

Í ávarpi sínu við athöfnina á Sogni sagði Jóhann Páll einnig að honum þætti sjálfsagt að ríkið byrjaði á því að axla ábyrgð á eigin landi, ganga á undan, nýta þau tækifæri sem væru á ríkisjörðum og byggja upp reynslu og þekkingu sem nýttist síðan víðar.
„Jafnframt komum við upp sterkari hvötum fyrir bændur, aðra landeigendur og félagasamtök til þess að láta verkin tala. Endurheimt votlendis og vistkerfa er hagkvæm loftslagsaðgerð en líka náttúruverndarmál og styður við líffræðilega fjölbreytni. Hún snýst ekki bara um CO2-ígildi heldur líka fuglana okkar og búsvæði þeirra. Þar sem eru skurðir í dag munum við sjá mýri og heyra fuglasöng eftir nokkur ár. Þetta er gott fyrsta skref. Svo höldum við áfram og byggjum á þessari reynslu á næstu árum."
Endurheimt votlendis er jafnframt ein þeirra aðgerða sem eiga að stuðla að markmiði Íslands um að draga úr losun frá landi um 400-500 þúsund tonn af koltvísýringsígildum fram til 2035 miðað við árið 2025.
Meira endurheimt en síðustu 30 ár
Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, hélt einnig ávarp við athöfnina í dag og sagði meðal annars að frá því að fyrst var farið að huga í alvöru að endurheimt votlendis hér á landi fyrir um 30 árum hefði þekkingu fleygt fram. Við værum í margfalt betri aðstöðu nú en bara fyrir nokkrum árum til að ná verulegum árangri í þessu mikilvæga verkefni – að endurheimta og vernda votlendi á Íslandi. Jafnframt sagði Ágúst:
„Ríkið ætlar nú að ganga á undan með góðu fordæmi og gera átak í endurheimt votlendis á sínum eigin jörðum. Með því móti kemst veruleg hreyfing á þessi mál þegar á þessu ári. Fyrir liggur að endurheimta mun stærra svæði raskaðs votlendis á þessu ári og því næsta, ef allt er talið saman, en náðist að endurheimta á síðustu 30 árum samtals.“

Vernd votlendis einnig mikilvæg
Samhliða endurheimtinni verður unnið að því að greina óröskuð og lítt röskuð votlendissvæði á ríkisjörðum með því markmiði að styrkja vernd þeirra. Þannig á vernd og endurheimt vistkerfa að ganga hönd í hönd, segir Jóhann Páll, og ýta undir þá opinberu stefnu að 30% raskaðra vistkerfa á landi, í ferskvatni, við strendur og í hafi verði komin í virka endurheimt árið 2030.
„Það er kannski ekki mikið að sjá hér í dag. Ein grafa, nokkrir skurðir. En sá sem kemur hingað aftur eftir tíu ár mun ekki sjá skurði heldur sjá mýri og heyra fuglasöng. Þannig líta loftslags- og náttúruverndaraðgerðir út þegar þær eru komnar til framkvæmda,“
sagði Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra við athöfnina á Sogni í dag. Meðfylgjandi myndir tók Hreinn Óskarsson nema þá efstu sem Ísabella Ósk Másdóttir tók.

