Aldin í Gunnarsholti
26. maí 2026
Ríflega tuttugu félagar í hreyfingunni Aldin gegn loftslagsvá fengu leiðsögn hjá fulltrúum Lands og skógar í Gunnarsholti, Hekluskógum og á Hafinu ofan Búrfells fimmtudaginn 21. maí.

Árni Bragason segir Aldin-félögum frá verkefnum sem unnið hefur verið að í Gunnarsholti. Ljósmynd: Halldór Reynisson.
Aldin er hreyfing fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið. Hreyfingin hvetur til tafarlausra aðgerða gegn fordæmalausri loftslagsvá. Fyrir heimsókninni til Lands og skógar fóru þeir Árni Bragason, fyrrverandi landgræðslustjóri, og Tryggvi Felixson sem á margan hátt hefur starfað að náttúruverndarmálum í áratugi.

Ágúst Sigurðsson forstöðumaður segir frá starfsemi Lands og skógar í Frægarði. Ljósmynd: Halldór Reynisson.
Í Gunnarsholti var meðal annars skoðaður Asparskógurinn svokallaði þar sem merkilegar tilraunir hafa farið fram. Einnig var farið að Landbót á Geitasandi sem í raun er kennslustofa í endurheimt og uppgræðslu. Hópurinn þáði hressingu í Frægarði í Gunnarsholti þar sem Ágúst Sigurðsson forstöðumaður gestunum starf stofnunarinnar. Einnig var frævinnslan skoðuð og Anne Bau sérfræðingur sýndi rannsóknarstofurnar og sagði frá starfinu þar.

Sigþrúður Jónsdóttir segir frá uppgræðslustarfi á Hafinu ofan Búrfells. Ljósmynd: Halldór Reynisson.
Þegar Aldinfélagar höfðu gróðursett nokkrar birkiplöntur í landi Gunnarsholts var haldið að Heklurótum og stansað í Bolholtsskógi og skoðuð skógrækt á svæðinu en því næst var haldið að Vaðöldu þar sem Sigþrúður Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Landi og skógi, sagði frá uppgræðslu á Hafinu við Sultartanga sem hefur oft orðið fyrir búsifjum af Heklugosum. Skoðuð voru vindmyllustæði á svæðinu ofan Sultartanga og Aldinfélagar tóku líka lagið í samhljómi við spóann og lóuna í uppgræddum móunum.
Land og skógur þakkar heimsóknina og óskar Aldinfélögum velfarnaðar í starfi sínu. Myndirnar sem hér fylgja eru fengnar af Facebook-síðu Aldins.

Tryggvi Felixson sem fór fyrir Aldin-félögum í heimsókninni ásamt Árna Bragasyni, fylgist hér með gróðursetningu trjáplöntu í Gunnarsholti. Ljósmynd: Halldór Reynisson.
