Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Vísinda- og fræðsludagur HSN 2026

Verið velkomin á Vísinda- og fræðsludag Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem verður haldinn í fyrsta skipti 20. maí 2026!

Um er að ræða frábært tækifæri fyrir bæði starfsfólk í heilbrigðisþjónustu sem og nema í greininni til að kynnast nýjustu rannsóknum og lausnum í heilbrigðisþjónustu, deila hugmyndum og reynslu. Vísinda- og fræðsludagur HSN 2026 verður haldinn í Hömrum í Hofi, byrjar kl. 12:30 og endar með léttum veitingum og tengslamyndun. Deginum verður einnig streymt á Teams. Dagskráin verður fjölbreytt og fræðandi, með áhugaverðum erindum og umræðum, en í lok dags verða pallborðsumræður undir yfirskriftinni Tækifæri í þróun á þjónustu með tæknina að vopni. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar og ljúfa samveru til að fagna góðum degi saman!

Vísinda- og fræðsludagur HSN er opinn öllu starfsfólki í heilbrigðisþjónustu og nemum í greininni, hvaðan sem er, að kostnaðarlausu.

Deginum stýrir María Pálsdóttir, leikkona.

Smelltu á hlekkinn til að skrá þig!