Viðvörunarkerfi heilans – Heilsukvíði
22. september 2026
Heilsukvíði er nokkuð algengur vandi, bæði hjá börnum og fullorðnum, og getur valdið mikilli vanlíðan og hömlun til lengri tíma ef ekki er brugðist við. Hugræn atferlismeðferð er árangursrík meðferð við heilsukvíða.

Á hverjum degi fær heilinn margskonar skilaboð frá líkamanum. Við finnum til dæmis fyrir þrýstingi frá fötum og skóm sem við klæðumst og þegar við höfum setið lengi á óþægilegum stól verðum við þreytt í bakinu og í afturendanum. Slík skilaboð túlkar heilinn sem minniháttar óþægindi. Hættuleg áreiti eða einkenni kveikja hins vegar á viðvörunar- og viðbragðskerfi heilans sem ætlað er að verja okkur fyrir raunverulegri hættu. Kerfið er misnæmt fyrir áreitum og það getur verið mismunandi milli fólks hvaða áreiti virkja það. Sá sem er hræddur um að þjófur brjótist inn að nóttu til er með næmt kerfi fyrir ýmiskonar hljóðum næturinnar, jafnvel þó hann sé sofandi. Hann getur vaknað upp við minnsta hljóð sem er óvenjulegt eða hann á ekki von á. Þegar málið er kannað kemur oftast í ljós að hljóðið sem vakti hann átti sér eðlilegar skýringar, að það voru t.d. bara smáhlutir fyrir utan gluggann sem vindurinn feykti um og að innbrotsþjófar voru ekki á ferðinni.
Þegar viðvörunarkerfið verður ofurnæmt
Ef þú hefur miklar áhyggjur af heilsu þinni er líklegt að þú hafir viðvörunarkerfi sem er óvenju næmt fyrir líkamlegri skynjun eða ónotum (t.d. suð í eyra, bóla á tungunni, ónot í hálsinum, þurrkur í augunum, doði í hendinni, kláði, stingur o.s.fv.). Upp úr þurru getur næmt viðvörunarkerfið gefið frá sér ástæðulausa viðvörun og gabbað þig til þess að beina mikilli athygli að þessum líkamlegu skynjunum. Þú ferð e.t.v. að hugsa „Nú er eitthvað að – Er ég að verða alvarlega veik/ur?“ og þú getur farið að ofmeta líkurnar á að um alvarlegan sjúkdóm sé að ræða.
Sértæk athygli og hamfarahugsanir
Þegar ofurnæma viðvörunarkerfið hefur kallað fram þessar hugsanir og viðbrögð er líklegt að þú hættir að taka mark á ýmsum vísbendingunum um að í rauninni er allt í lagi með þig. Við tekur sértæk athygli þar sem þú ert upptekin/n af minnstu vísbendingum frá líkamanum. Samhliða fara um heilann óraunhæfar hamfarahugsanir þar sem þú getur farið að sjá fyrir þér slæmar og ýktar afleiðingar þessara einkenna, t.d. að þú munir missa sjónina eða sért kominn með alvarlegt og ólæknandi krabbamein.
Að læra að túlka viðvaranirnar
Á heimilum eru reykskynjarar mikilvæg öryggistæki og þó að þeir fari stundum af stað án þess að hætta sé á ferðum er engin ástæða til þess að henda þeim. Við viljum heldur ekki slökkva alveg á viðvörunarkerfi heilans, heldur viljum við verða betri í að túlka skilaboðin frá því og bregðast við þeim á viðeigandi hátt.
Þannig er líka mikilvægt að hlusta á líkamann ef við finnum fyrir raunverulegum verkjum eða öðrum einkennum sem gefa tilefni til þess að leita læknis.
Að skrúfa niður í kerfinu
Með vitneskju um ofurnæma viðvörunarkerfið getum við æft okkur í að „skrúfað niður í kerfinu“.
Segðu við sjálfa/n þig þegar ofurnæma viðvörunarkerfið fer á fullt: „Þetta er bara ofurnæma kerfið að gabba mig aftur!“.
Leiðréttu tilfinningaviðbrögð þín með því að hugsa: „Þetta er allt í lagi, ofurnæma kerfið bregst við (… kláðanum, doðanum, stingnum) af gömlum vana. Fyrsta hugsun mín er að nú sé eitthvað hræðilegt að, en líklegast er þetta eðlileg líkamsskynjun sem ég þarf ekki að hafa áhyggjur af“.
„Það er ástæðulaust að gera mikið úr þessum líkamsviðbrögðum eða hugsunum um þau – Ég ætla að láta þau líða hjá“.
Færðu svo hugsunina að öðru, t.d. því sem þú ert að gera þá stundina.
Gangi þér vel!
Aðalheiður Jónsdóttir, sálfræðingur

