Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Valur Helgi Kristinsson ráðinn sem yfirlæknir og Arna Reynisdóttir sem aðstoðaryfirlæknir hjá HSN á Akureyri

23. september 2026

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna um tvær nýjar ráðningar við HSN á Akureyri.

Valur Helgi Kristinsson hefur verið fastráðinn yfirlæknir hjá HSN á Akureyri í kjölfar auglýsingar um stöðuna. Hann hefur gegnt starfinu frá því í janúar 2026.

Valur er sérfræðingur í heimilislækningum. Hann lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2000 og sérnámi í heimilislækningum á Húsavík og í Örebro í Svíþjóð árið 2007. Að námi loknu starfaði hann sem heimilislæknir í Lundi í Svíþjóð.

Valur þekkir HSN vel, en hann hefur starfað hjá heilsugæslunni á Akureyri frá árinu 2009, að undanskildu stuttu hléi árið 2024 þegar hann starfaði sem heimilis- og trúnaðarlæknir hjá Heilsuvernd.

Arna Reynisdóttir sérfræðingur í heimilislækningum hefur verið ráðin sem aðstoðaryfirlæknir hjá HSN á Akureyri. Arna hefur lokið tveimur árum í lyfjafræði frá Háskóla Íslands en ákvað þá að hefja nám í læknisfræði. Hún lauk námi í læknisfræði frá Debrecen í Ungverjalandi árið 2017 og flutti í kjölfarið heim til Akureyrar.

Hún varði sérnámsgrunnnámi (áður kandidatsnám) sínu á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á HSN á Akureyri árin 2017 og 2018 og vann í kjölfarið í rúmt ár á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Arna hefur starfað hjá HSN á Akureyri frá árinu 2020.

Við óskum þeim Val og Örnu innilega til hamingju!