Tilkynning frá HSN Akureyri vegna Heilsuveru
20. desember 2022
Opið er fyrir innsendingar á heilsuveruskilaboðum frá kl. 07-18 alla virka daga.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/33v5cpMdglYXox5MN5ll7G/9aef40f5620687128ac765b9f257f706/heilsuvera.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Heilsuvera](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/33v5cpMdglYXox5MN5ll7G/9aef40f5620687128ac765b9f257f706/heilsuvera.png?w=774&fm=webp&q=80)
Breytingar hafa verið gerðar á heilsuveru hjá HSN Akureyri. Hægt er að senda skilaboð í gegnum heilsuveru alla virka daga frá kl. 07-18. Lokað er um helgar og á helgidögum.
Hægt er þó að svara skilaboðum frá læknum og frá bráðavakt.
Alltaf er opið fyrir lyfjaendurnýjun.
Við minnum svo á að spjallið á heilsuveru.is er alltaf opið, sem aðgengilegt er frá heimasíðu HSN.