Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Þróunarverkefnið „Gott að eldast“ hefst í Dalvíkurbyggð

22. nóvember 2024

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Dalvíkurbyggð og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík taka þátt í þróunarverkefninu „Gott að eldast“ en samningur þess efnis var undirritaður síðastliðinn fimmtudag á Dalvík.

Undirritun samnings
  • Samþætting þjónustu sem eflir heimaþjónustu við eldri borgara Dalvíkurbyggðar

  • Rekstur heimahjúkrunar og félagsþjónustu í heimahúsum færist yfir á Dalbæ

  • Kvöldþjónusta sett á laggirnar og helgarþjónusta efld

  • Nýtt starf tengiráðgjafa sem tekur á félagslegri einangrun fólks

  • Nýtt starf iðjuþjálfa til að vinna í heimaendurhæfingarteymi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Dalvíkurbyggð og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík taka þátt í þróunarverkefninu „Gott að eldast“en samningur þess efnis var undirritaður þann síðastliðinn fimmtudag á Dalvík. „Gott að eldast“ er yfirskrift aðgerðaáætlunar stjórnvalda í málefnum eldra fólks sem Alþingi samþykkti hinn 10. maí 2023. Verkefnið felst einna helst í því að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum og koma henni á eina hendi til hagræðingar fyrir þjónustuþega.

Dalvíkurbyggð er eitt sex svæða á landinu sem valið var til þátttöku í verkefninu og verður hjúkrunarheimilið Dalbær rekstraraðili verkefnisins með stuðningi frá HSN og Dalvíkurbyggð. Sameiginleg markmið með samþættri heimaþjónustu eru að auka lífsgæði eldri borgara Dalvíkurbyggðar, einfalda boðleiðir og tryggja samfellu í þjónustu. Kvöldþjónusta verður ný þjónusta, helgarþjónusta efld og möguleiki verður á næturþjónustu. Þá verður ný staða tengiráðgjafa sett á laggirnar sem ætlað er að vinna gegn félagslegri einangrun eldra fólks og ráðinn verður iðjuþjálfi til að vinna í heimaendurhæfingarteymi þjónustunnar.

gott að eldast

Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN, Guðný Friðriksdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar HSN, Eyrún Rafnsdóttir sviðstjóri félagsmálasviðs Dalvíkurbyggðar, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, Elísa Rán Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Dalbæ, Lilja Guðnadóttir yfirhjúkrunarfræðingur svæðis HSN Dalvík og Benedikt Snær Magnússon stjórnarformaður Dalbæjar.

„Það eru gríðarlega mörg tækifæri sem „Gott að eldast“ verkefnið færir okkur.“, sagði Elísa Rán Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Dalbæ. „Með því að hafa allan reksturinn á einni hendi gefst tækifæri til að gera þjónustuna skilvirkari, einfalda boðleiðir og auka þjónustu við eldri borgara í Dalvíkurbyggð. Með þróunarverkefninu fylgir einnig fjármagn fyrir tengiráðgjafa og starfi iðjuþjálfa í heimaendurhæfingu.”

“Við höfum mikla trú á þessu verkefni en því er ætlað að efla heimaþjónustu í Dalvíkurbyggð töluvert.“, sagði Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá HSN. „Fólk vill geta verið heima hjá sér lengur sem kallar á öflugri þjónustu í heimahjúkrun en með samþættingunni verður meðal annars hægt að bjóða upp á kvöldþjónustu til heimila öll kvöld vikunnar sem ekki var áður.”

„Það er mjög ánægjulegt að fá að taka þátt í „Gott að eldast“ verkefninu.“, sagði Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. „Verkefnið býður upp á aukna samvinnu á milli heilbrigðis- og félagsþjónustu, en verkefni eiga að fara á milli félags- og heilbrigðisþjónustu á báða bóga. Þannig verður unnið að því að ein þjónustugátt verði fyrir móttöku þjónustubeiðna til einföldunar fyrir skjólstæðinga og matsteymi skipuleggur þörf á þjónustu.“

Gott að eldast Dalvik

Um Gott að eldast:

Meginþungi aðgerða í Gott að eldast aðgerðaáætlun fyrir eldra fólk felst í þróunarverkefnum þar sem samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum, nýsköpun og prófanir munu nýtast sem grundvöllur að ákvörðunum um framtíðarskipulag þjónustu við eldra fólk. Markmið er að veita heildræna og skilvirka samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu við fólk í heimahúsi og þannig stuðla að öruggri búsetu eldra fólks sem lengst heima, við sem eðlilegastar aðstæður. Þá er verkefninu ætlað að leiða í ljós kosti og galla þess að samþætta rekstur heimaþjónustu fyrir alla þjónustuþega hennar. Samstarfsaðilum verður veittur skipulagður stuðningur og ráðgjöf við innleiðingu þróunarverkefnanna og eftirfylgni, auk mats á árangri, frá starfsfólki Gott að eldast.

Aðgerðaáætlunin byggist á stjórnarsáttmála ríkis stjórnarinnar og viljayfirlýsingu félags- og vinnumarkaðsráðherra, heilbrigðis ráðherra, fjármálaráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. Þverfaglegt samstarf félags- og heilbrigðisþjónustu er grundvallaratriði til að ná fram samlegðaráhrifum fagþekkingar á hvoru sviði fyrir sig og tryggja þannig betri þjónustu við stækkandi þjóðfélagshóp, m.a. með samþættingu á þjónustu, forvörnum, heilsueflingu og aukinni virkni.

Nánari upplýsingar um verkefnið “Gott að eldast” má finna á vef Stjórnarráðsins. Stjórnarráðið | Gott að eldast