Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

“...svo átti maður bara að vera tilbúinn” 

28. maí 2026

Móttaka og aðlögun nýs starfsfólks skiptir sköpun í heilbrigðisþjónustu .

Helga Margrét Jóhannesdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi.

Móttaka og aðlögun nýs starfsfólks er ein af lykilforsendum þess að byggja upp trausta, öfluga og sjálfbæra heilbrigðisþjónustu. Í meistaranámi sínu í heilbrigðisvísindum með áherslu á stjórnun í heilbrigðisþjónustu beindi Helga Margrét Jóhannesdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi, sjónum sínum að reynslu nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga af fyrstu árunum í starfi, en hluti hennar fjallaði að auki sérstaklega um farsæla móttöku alls nýs starfsfólks, óháð fagstétt. Rannsóknin var gerð á meðal nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga, á fjölbreyttum starfsvettvangi á landsvísu.

„Fyrstu skrefin í nýju starfi skipta sköpum fyrir alla, hvort sem um er að ræða hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, annað heilbrigðisstarfsfólk eða starfsfólk í stoðþjónustu. Góð móttaka, skýr samskipti og virkur stuðningur leggja grunn að öryggi, starfsánægju og því að fólk vilji festa rætur á vinnustaðnum.“

Óraunhæfar kröfur gerðar miðað við starfsreynslu

Í rannsókninni sem bar yfirþemað „...svo átti maður bara að vera tilbúinn“, lýsa þátttakendur upplifun sinni af því að til þeirra væru gerðar óraunhæfar kröfur miðað við starfsreynslu. Margir upplifðu misræmi á milli væntinga og raunveruleika og fundu ekki fyrir raunverulegu öryggi í starfi fyrr en eftir eitt til þrjú ár.

Þátttakendur lýstu snemma erfiðleikum við að aðskilja vinnu og einkalíf, fundu fyrir svefntruflunum, síþreytu og líkamlegum verkjum. Mikil ábyrgð, óöryggi í starfi og ótti við að gera mistök setti mark sitt á líðan þeirra og þrír þátttakendur höfðu þegar kulnað í starfi. Flestir höfðu hugleitt að hætta, einkum á tímabilum þegar álag var mikið og áttu margir erfitt með að sjá sig til lengri tíma í starfinu við þessar aðstæður.

Móttaka og stuðningur stjórnenda hefur áhrif á starfsupplifun

Í frásögnum þátttakenda kom jafnframt skýrt fram að móttaka og stuðningur stjórnenda skipti höfuðmáli fyrir upplifun þeirra af starfinu. Þar sem stuðningur var markviss, einstaklingsmiðaður og stjórnandi sýnilegur upplifðu þátttakendur meira öryggi og starfsánægju. Andstæða þess, það er óskýr móttaka, skortur á samtali og lítið utanumhald, jók líkur á vanlíðan og brotthvarfshugsunum. Móttaka nýliða og viðverandi stuðningur reyndist því lykilþáttur í því hvort fyrstu árin í starfi urðu uppbyggjandi reynsla eða íþyngjandi.

Sumarstarfsfólkið streymir að og við erum tilbúin

Um þessar mundir fer HSN að taka á móti sumarstarfsfólki en margir eru þar að stíga sín allra fyrstu skref í heilbrigðisþjónustu eða jafnvel á vinnumarkaði.

"Fyrsta upplifun þessa hóps af vinnustaðnum, samskiptum og stuðningi getur haft afdrifarík áhrif á vellíðan þeirra og viðhorf til vinnumarkaðarins til framtíðar. Hvort fólk upplifir öryggi, virðingu og stuðning strax í upphafi getur ráðið því hvort það blómstrar í starfi eða dregur sig í hlé. Við berum ríka ábyrgð á því að passa vel upp á fólk á þessum tímamótum.“

Rannsókn Helgu sýndi að stjórnendur gegni lykilhlutverki í aðlögun nýs starfsfólks. Með sýnilegri stjórnun, reglulegu samtali og virku utanumhaldi, geta stjórnendur haft afgerandi áhrif á upplifun öryggis, vellíðanar og starfsánægju.

„Við hjá HSN höfum yfir að ráða fjölbreyttum og öflugum verkfærum til að styðja við þetta hlutverk. Þar má nefna nýsamþykktar stefnur sem miða að því að efla vellíðan, samskipti, jafnrétti og faglega þróun starfsfólks. Jafnframt hefur verið sett skýrt verklag um viðbrögð við einelti, áreitni og ofbeldi. Slíkir rammar skapa öryggi, styðja heilbrigð samskipti og gera stjórnendum kleift að grípa snemma inn í og styðja við nýtt starfsfólk, ekki síst þau sem eru að hefja sitt allra fyrsta starf. Okkar ábyrgð er að skapa vinnuumhverfi þar sem allt nýtt starfsfólk, ekki síst þau sem eru að taka sín fyrstu skref, fá þann stuðning sem þau þurfa til að finna öryggi, þróast í starfi og verða hluti af sterkri og faglegri heild til framtíðar. Við hlökkum að taka á móti nýju fólki í sumar og vonum að þeirra upplifun verði til góðs, þau finni sig vel í starfi og geti hugsað sér að vera með okkur í framtíðinni.“

Skrifuð var ritrýnd fræðigrein upp úr rannsókninni sem fékk birtingu í Tímariti hjúkrunarfræðinga og má lesa greinina í heild sinni hér.