Styrkur veittur Geðheilsuteymi barna hjá HSN
8. júlí 2026
Sálfélagsleg þjónusta barna á HSN hefur fengið afhenta rausnarlega gjöf frá Lionsklúbbnum Ylfu sem mun nýtast afar vel í þjónustu við börn og unglinga

Um er að ræða skynörvunarvörur, fiktileikföng sem eru gagnlegar fyrir fólk á öllum aldri og henta sérstaklega vel þeim sem hafa taugaþroskafrávik á borð við ADHD og einhverfu. Þá henta vörurnar einnig þeim sem eru með skynúrvinnsluvanda eða kvíða, þeim sem þurfa bætta einbeitingu og þeim sem upplifa streitu og eirðarleysi. Lionsklúbburinn Ylfa afhenti geðheilsuteymi barna hjá HSN gjöfina við formlega athöfn 29. júní síðastliðinn.

„Við erum afar þakklát Lionsklúbbnum Ylfu fyrir þann stuðning sem felst í þessari rausnarlegu gjöf. Skynörvunarvörurnar munu án efa bæta þjónustu okkar og aðstoða skjólstæðinga okkar í sinni meðferð,“ segir Alice Harpa Björgvinsdóttir, forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu HSN á Akureyri.
„Skynörvunarvörur sem þessar geta aðstoðað við tilfinningastjórn, temprun tilfinninga eða til aðstoðar við að ná aukinni sjálfsstjórn og ró. Stór hluti þjónustuþega glíma við ofangreindan vanda og höfum við séð í raun hvernig slíkar vörur hafa nýst í meðferð, þá ekki einungis börnunum sjálfum heldur einnig aðstandendum þeirra,“ segir María Bjarnadóttir teymisstjóri.
Gjafir sem þessar eru mikilvæg viðbót við starfsemi heilsugæslunnar og skýrt dæmi um öflugt samstarf við samfélagið. Stuðningur Lionsklúbbsins Ylfu gerir stofnuninni kleift að halda áfram að bæta þjónustuna við þennan mikilvæga hóp barna og ungmenna.

Geðheilsuteymi barna HSN
Geðheilsuteymi barna (GTB) er hluti af sálfélagslegri þjónustu barna hjá HSN og þjónustar börn að 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra í heilbrigðisumdæmi Norður- og Austurlands. Teymið þjónustar börn og fjölskyldur þeirra sem eru með geðvanda og þarfnast aðkomu teymis. Í teyminu starfa sálfræðingar, iðjuþjálfi, læknir, félagsráðgjafi og heilbrigðisgagnafræðingur. Í þjónustunni felst mat á vanda, meðferðaráætlun og viðeigandi meðferð. Áhersla er lögð á gott viðmót, fjölskyldumiðaða þjónustu og góða samvinnu við önnur þjónustukerfi sem koma að málum þeirra barna sem eru í þjónustu hjá GTB.
