Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Stofnun ársins 2024: Marktækt aukin starfsánægja hjá HSN á milli ára

17. febrúar 2025

Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hækkaði í öllum flokkum á milli ára í Stofnun ársins, en könnunin metur stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt, og jafnrétti.

stofnun ársins

Í síðustu viku  voru birtar niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2024, en þær veita bæði mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar opinberar stofnanir. Um 35.000 manns svaraði könnuninni. 

Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hækkaði  í öllum flokkum á milli ára, en könnunin metur stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt, og jafnrétti.  HSN er nú í 15-18 sæti í flokki stórra stofnana en var í 35-36 sæti í sama flokki í fyrra. Þættirnir sem hækkuð mest eru stjórnun, ímynd og ánægja og stolt. 

„Hjá HSN höfum við undanfarið unnið markvisst að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi okkar. Við erum með metnaðarfulla  stjórnendafræðslu og stuðning  við stjórnendur.  Við gerum reglulegar viðhorfskannanir á meðal starfsfólks og nýtum þær markvisst til úrbóta. Þá vann starfsfólk HSN að stefnumótun stofnunarinnar til næstu ára, sem færði mikilvæg og fjölbreytt sjónarmið og hugmyndir upp á borðið um hvernig við getum bætt þjónustu við íbúa, starfsaðstæður og starfsánægju.“, segir Hildur Ösp Gylfadóttir framkvæmdastjóri mannauðs.

„Þá höfum við líka eflt sýnileika okkar og aukið við fjölda frétta af starfsfólkinu okkar og þeim mikilvægu verkefnum sem þau sinna á hinum ýmsu starfstöðvum HSN. Nýtt húsnæði heilsugæslu HSN á Akureyri hefur skipt sköpum fyrir aðbúnað hluta  starfsfólks sem og skjólstæðinga. Við höfum verið að taka skref til innleiðingar á teymisvinnu og heilsueflandi vinnustaðar og við viljum taka fleiri örugg skref þar.“, segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN.  

Hildur Ösp og Jón Helgi eru sammála um að HSN sé  fyrst og fremst  heppið með starfsfólk. Hvert sem í horn er litið er kraftmikið og jákvætt fólk sem vinnur af heilindum sem skilar okkur betri vinnustað. Fyrir það erum við mjög þakklát.  

Við erum hvergi nærri hætt og munum gera okkar allra besta til að þróa áfram starfið með okkar góða starfsfólki en öll berum við ábyrgð á að skapa og viðhalda góðri vinnustaðarmenningu og  góðum  starfsanda.  

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og annarra opinberra stofnana og vinnustaða víða um land.