Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sterkari innviðir og vaxandi starfsánægja þrátt fyrir áskoranir

15. maí 2025

Ársfundur HSN

Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) fór fram í Hofi á Akureyri þriðjudaginn 13. maí 2025. Þar voru kynntar niðurstöður fyrir rekstrarárið 2024. Þrátt fyrir áskoranir í rekstri varð þó mjög jákvæð þróun í starfsemi, þjónustu og mannauðsmálum sem gefur tilefni til bjartsýni fram veginn.  

  • Rekstrarhalli ársins nam 431 milljón króna og má rekja hann að mestu til nýrra kjara- og stofnanasamninga sem ekki hafa enn verið að fullu kostaðir. 

  • Verkefnið „Vellíðan á vinnustað“ hófst síðla árs 2024. Markmið þess er að efla starfsumhverfi og stuðla að betri heilsu starfsmanna, með það að leiðarljósi að draga úr veikindum vegna starfsaðstæðna. 

  • HSN hækkaði marktækt í könnuninni „Stofnun ársins“, úr einkunninni 3,76 í 4,1. Einkunnin byggir meðal annars á ánægju starfsmanna, stjórnun og ímynd stofnunarinnar. HSN fór úr 35.-36. sæti í 15.-18. sæti stórra stofnana. Áhersla verður áfram lögð á að efla jákvæða vinnustaðamenningu og góða ímynd – lykilþætti í að halda í gott starfsfólk og laða að nýtt. 

  • Nýtt húsnæði tekið í notkun á Akureyri: Heilsugæsla HSN á Akureyri hóf starfsemi í vel skipulögðu húsnæði í Sunnuhlíð og sálfélagsleg þjónusta ásamt skrifstofum HSN á Hvannavöllum. 

  • Heilsueflandi vinnustaður: Verkefnið hófst á Akureyri ásamt nýju fyrirkomulagi teymisvinnu sem miðar að því að bæta skipulag, stuðla að ánægju starfsfólks og auka samfellu í þjónustu við skjólstæðinga. Innleiðing stendur nú yfir á fleiri starfsstöðvum.  

  • Öflugari sálfélagsleg þjónusta: Nýtt geðheilsuteymi barna hóf starfsemi. Nú er innan HSN boðið upp á bæði sálfræði- og geðheilsuteymisþjónustu fyrir börn og fullorðna. 

  • Stofnun Akureyrarklíníkurinnar: HSN hefur í samstarfi við SAk sett á laggirnar mikilvæga starfsemi sem þjónustar einstaklinga með ME sjúkdóminn sem er langvinnur þreytusjúkdómur. 

  • „Gott að eldast“ í Dalvíkurbyggð: Verkefnið var innleitt með yfirfærslu heimahjúkrunar yfir á dvalarheimilið Dalbæ. Ný þjónusta er kvöldþjónusta í heimahjúkrun ásamt stuðningi frá endurhæfingarteymi og tengiráðgjafa. 

Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN: „Þrátt fyrir áskoranir í rekstri þá erum við mjög ánægð með framgang HSN á árinu. Mjög jákvæð þróun varð sem hefur leitt til aukinnar starfsánægju og bættrar þjónustu við skjólstæðinga á þessu víðfeðma svæði. Við höfum m.a. nýtt velferðartækni til að auka öryggi og bæta þjónustu, og mönnun hefur gengið betur en áður – við höfum verið afar heppin með nýráðningar. Eftir þetta tíunda afmælisár HSN lítum við björtum augum til framtíðar með nýja stefnu og starfsáætlun, og mikinn drifkraft í okkar frábæra starfsfólki.“ 

 Ársskýrslu fyrir starfsárið 2024 má sjá á sjá á þessum hlekk.