Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Starfsánægja eykst áfram hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

18. febrúar 2026

Það er mjög ánægjulegt að niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2025 sýna að starfsánægja innan HSN heldur áfram að aukast, en heildareinkunn stofnunarinnar hækkar á milli ára.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands leggur ríka áherslu á að veita góða þjónustu og að starfsfólki líði vel í starfi. Báðir þessir þættir eru mældir reglulega með skipulögðum hætti svo hægt sé að fylgjast með þróuninni og gera úrbætur þegar þess gerist þörf.

Í síðustu viku bárust niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2025. Það er mjög ánægjulegt að niðurstöðurnar sýna að starfsánægja innan HSN heldur áfram að aukast, en heildareinkunn stofnunarinnar hækkar á milli ára. HSN er nú í 13. sæti í hópi stórra stofnana. Í könnuninni flokkast spurningar í níu meginþætti: stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu, ímynd stofnunar, sjálfstæði í starfi, ánægju og stolt og jafnrétti. Af þessum níu þáttum hækkuðu sjö á milli ára sem undirstrikar jákvæða þróun í starfsumhverfi stofnunarinnar.

Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að umbótum í starfsumhverfi, samskiptum og teymisvinnu. Sú vinna virðist vera að skila sér í aukinni starfsánægju sem er lykilforsenda góðrar þjónustu við notendur heilbrigðisþjónustunnar.

HSN mun áfram leggja áherslu á reglulegar mælingar, opið samtal og stöðugar umbætur með það að markmiði að efla bæði starfsánægju og gæði þjónustunnar.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og annarra opinberra stofnana og vinnustaða víða um land.