Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Rótarýklúbburinn færir HSN á Sauðárkróki þrjú þrekhjól að gjöf

1. júní 2026

Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi í heimsókn í aðsetur sjúkraþjálfunar og endurhæfingar HSN á Sauðárkróki þann 21. maí síðastliðinn.

Það er markmið félaga að láta gott af sér leiða sem víðast í samfélaginu. Gjöfin í ár eru þrjú þrekhjól, hugsuð fyrir alla þá fjölmörgu einstaklinga sem njóta þjálfunar og endurhæfingar hjá stofnuninni. Sjúkraþjálfararnir Sveinn Sverrisson, Helena Magnúsdóttir, Árný Lilja Árnadóttir og Fanney Ísold Karlsdóttir ásamt þeim Sigurbjörgu Ólafsdóttur, yfirlækni á Sauðárkróki og Kristrúnu Snjólfsdóttur, yfirhjúkrunarfræðingi svæðis, sem veittu hjólunum móttöku.

Hjólin voru sérstaklega valin af Fanney Ísold og þykja einstaklega góð, en þau leysa af hólmi þrekhjól sem voru virkilega komin til ára sinna. Við erum því afskaplega þakklát fyrir þessa rausnarlegu gjöf.

Um Rótarýklúbb Sauðárkróks:

Rótarýklúbbur Sauðárkróks var formlega stofnaður 26. september 1948 og hefur óslitið allar götur síðan stutt við samfélagið með margvíslegum hætti. Starfið er virkilega skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi. Félagar eru með ýmsa árlega viðburði, s.s jólahlaðborð Rótarý, árshátíð og makaferð svo eitthvað sé nefnt. Tilvalinn félagsskapur fyrir þá sem vilja fræðast og hafa áhrif á sitt nærumhverfi og í leiðinni að njóta góðrar samveru. Öll eru hjartanlega velkomin að gerast félagar í Rótarýklúbb Sauðárkróks.