Nýr yfirlæknir HSN á Sauðárkróki - Sigurbjörg Ólafsdóttir
16. maí 2024
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Sigurbjörg Ólafsdóttir, heimilislæknir hefur verið ráðin yfirlæknir á HSN Sauðárkróki.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4tK7Y4IPz41IYm0bM7NuBU/49b840cae814a58c63f127ae590c1864/sigurbj_rg__lafsd_ttir.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![sigurbjörg ólafsdóttir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4tK7Y4IPz41IYm0bM7NuBU/49b840cae814a58c63f127ae590c1864/sigurbj_rg__lafsd_ttir.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Sigurbjörg lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2012 og hóf sérnám í heimilislækningum á HSN Sauðárkróki 2014. Hún hélt síðar til Svíþjóðar hvaðan hún lauk sérnámi í Svíþjóð árið 2020 og hefur síðan starfað þar á heilsugæslustöðvum sem heimilislæknir.
Við fögnum því að fá Sigurbjörgu aftur í okkar hóp og bjóðum hana hjartanlega velkomna. Sigurbjörg kemur til starfa 1. september n.k.