Nýr samningur um sjúkraflutninga í Skagafirði undirritaður
5. júní 2025
Í dag, 5. júní undirrituðu Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar nýjan samning um þjónustu sjúkraflutninga.

Samningurinn, sem gildir til næstu 5 ára, nær til sjúkraflutninga í Skagafirði, utan Fljóta sem njóta þjónustu frá Fjallabyggð. Brunavarnir Skagafjarðar munu sjá um framkvæmd samningsins líkt og undanfarin ár.
Áralöng hefð er fyrir samstarfi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sveitarfélagsins Skagafjarðar og Brunavarna Skagafjarðar vegna sjúkraflutninga og eru samningsaðilar því mjög ánægðir með að samkomulag vegna sjúkraflutninga í Skagafirði hafi verið tryggt næstu árin. Helstu nýmæli í samningnum eru að til viðbótar við hefðbundna sjúkra- og millistofnanaflutninga er nú tekið upp svokallað einmenningsviðbragð. Það er vegna millistofnanaflutninga fyrir einfaldari heilbrigðisþjónustu sem krefst ekki sérhæfðs sjúkrabíls.