Fara beint í efnið

Ný heilsugæslustöð HSN opnar á Akureyri 19. febrúar

14. febrúar 2024

Heilbrigðisstofnun Norðurlands opnar nýja og glæsilega heilsugæslustöð, mánudaginn 19. febrúar við Sunnuhlíð 12 á Akureyri.

HSN Sunnuhlid mottaka

Ný og vel útbúin heilsugæslustöð fyrir Akureyri og nærsveitir opnar í Sunnuhlíð 12 mánudaginn, 19. febrúar, en öll þjónusta og starfsemi sem hefur verið í heilsugæslustöðinni í Hafnarstræti mun flytjast þangað. Sálfélagsleg þjónusta og geðheilsuteymi verður áfram á Hvannavöllum og heimahjúkrun í Skarðshlíð. 

Á stöðinni verður öll almenn læknaþjónusta, hjúkrunarmóttaka, mæðravernd, ungbarnavernd og önnur þjónusta fyrir íbúa á Akureyri og nærsveitarfélög. Nýja heilsugæslan er sérhönnuð utan um starfsemina, en miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu sem er um 1700 fm að stærð.

,,Þetta er langþráð breyting og mikilvæg tímamót", segir Jón Torfi Halldórsson, yfirlæknir á heilsugæslunni á Akureyri. ,,Í rúm 40 ár hefur heilsugæslustöðin verið í ófullnægjandi húsnæði með erfiðri aðkomu en opnar núna í sérhönnuðu húsnæði með þægilegri og til muna betri aðkomu fyrir okkar skjólstæðinga. Starfsemin verður öll á einni hæð sem gefur mikil tækifæri fyrir starfsfólk til að bæta þjónustuna með aukinni þverfaglegri samvinnu."

,,Það er okkur öllum mikið ánægjuefni og tilhlökkun að flytja í nýtt fallegt húsnæði", segir Inga Lára Símonardóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni á Akureyri. ,,Spennandi tímar eru framundan og þetta gefur okkur mikil tækifæri til að þróa þjónustuna enn frekar til hagsbóta fyrir okkar skjólstæðinga. Við á heilsugæslunni óskum starfsmönnun og skjólstæðingum okkar til hamingju með þennan langþráða áfanga."

Vegna flutninga yfir á nýja heilsugæslustöð verður þjónusta heilsugæslunnar í Hafnarstræti takmörkuð dagana 14.-16. febrúar, nema bráðaþjónusta sem áfram verður sinnt að fullu í Hafnarstræti til og með 18. febrúar. Beðist er velvirðingar á óþægindum vegna þessa.  

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýrri heilsugæslustöð í Sunnuhlið frá og með 19. febrúar.