Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Ný gæðahandbók styrkir þjónustu við börn og ungmenni

7. september 2026

Fyrsta gæðahandbókin um geðheilbrigðisþjónustu barna í íslenskri heilsugæslu hefur litið dagsins ljós. Handbókinni er ætlað að styðja við samræmt verklag og bæta þjónustu við börn og ungmenni með vægan til miðlungsalvarlegan geðheilbrigðisvanda. Aðalheiður Jónsdóttir, aðstoðaryfirsálfræðingur hjá HSN, tók þátt í gerð handbókarinnar.

Stuðlar að betri þjónustu við börn

„Þessi útgáfa er mjög mikilvægur áfangi, en um níu ár eru síðan fyrstu barnasálfræðingarnir hófu störf innan heilsugæslunnar. Þó að við séum í grunninn að vinna eftir sama verklagi innan heilsugæslunnar, þá rammar handbókin verklag betur inn. Henni er ætlað að stuðla að því að börn að 18 ára aldri fái rétta þjónustu, að vandi þeirra sé metinn með viðeigandi hætti og að í framhaldinu sé veitt rétt og árangursríkari meðferð.“

Handbókin byggir á grunni eldri handbókar um sálfræðiþjónustu við fullorðna og lögum og reglugerðum sem tengjast geðheilbrigðisþjónustu við börn. Í bókinni eru staðfært gagnreynt verklag erlendis frá sem m.a. byggir á klínískum leiðbeiningum frá NICE (National Institute for Health and Care Excellence sem er útgefandi klínískra leiðbeininga fyrir heilbrigðisþjónustu) auk þess sem horft var til rannsókna og annarra erlendra fyrirmynda í geðheilbrigðisþjónustu við börn. Þá var einnig byggt á uppsafnaðri reynslu innan íslenskrar heilsugæslu.

Nauðsynlegar upplýsingar aðgengilegar á einum stað

Handbókin er skrifuð út frá sálfræðiþjónustu í heilsugæslu, en getur einnig nýst öðru fagfólki sem kemur að geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna. Hún fjallar meðal annars um hæfni- og gæðaviðmið, starfsumhverfi þjónustunnar, tilvísanir, matsferli, greiningar, skráningar í sjúkraskrá, snemmtæka íhlutun og meðferð. Þar er einnig að finna yfirlit yfir helstu lög og reglugerðir sem tengjast málaflokknum.

„Mikill styrkur felst í því að hafa þessar upplýsingar aðgengilegar á einum stað, en áður þurfti oft að leita í mörgum mismunandi leiðbeiningum og gögnum. Sérstakur kafli fjallar um gæðavísa sem hægt er að nota til að fylgjast með stöðu og árangri þjónustunnar en æskilegt er að gögnum sé safnað um fjölda barna sem fá þjónustu eða bíða eftir þjónustu ásamt því að safna upplýsingum um lengd biðtíma og árangur meðferða."

Gæðavísar eru fyrst og fremst töluleg gögn sem æskilegt er að kalla fram og safna yfir tíma og milli stofnana. Í handbókinni eru líka leiðbeiningar um hæfni og gæðaviðmið þar sem fjallað er um siðferðileg og félagsleg gildi sem geta haft áhrif á mat og meðferð.

Nýtist sálfræðingum sem stíga sín fyrstu skref

„Handbókin getur nýst vel sálfræðingum sem eru að stíga sín fyrstu skref í þjónustunni afar vel, en einnig foreldrum sem vilja fræðast um hvernig geðheilbrigðisþjónusta er skipulögð, öðru fagfólki og þeim sem koma að mótun heilbrigðisstefnu.“

Verkefnið var unnið í samstarfi Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og HSN. Guðríður Haraldsdóttir, klínískur sálfræðingur hjá Geðheilsumiðstöð barna hóf vinnuna ásamt Liv Önnu Gunnell, fagstjóra sálfræðiþjónustu hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og tók Aðalheiður síðar við verkefninu af Guðríði. Fjöldi sálfræðinga kom að vinnunni og yfirlestri handbókarinnar, auk þess sem persónuverndarfulltrúi HSN las yfir einn kafla hennar. Bókin verður uppfærð eftir því sem þjónustan þróast og gæðastaðlar og klínískar leiðbeiningar verða uppfærðar.

Handbókin er aðgengileg öllum á vef Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (sjá Gæðahandbók. Geðheilbrigðisþjónusta í heilsugæslu. Fyrsta þjónustustig fyrir börn og ungmenni).

Gæðahandbók í heilsugæslu - Fyrsta þjónustustig fyrir börn og ungmenni - 2026