Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Norðurland – segull fyrir sérnámslækna í heimilislækningum?

17. febrúar 2026

HSN á Akureyri hefur á örfáum árum orðið sífellt vinsælli valkostur fyrir unga lækna sem vilja sérhæfa sig í heimilislækningum. Góður vinnustaður og aðstæður, hlýtt samfélag og lífsgæði – allt small þetta saman fyrir Reykvíkinginn og sérnámslækninn Ólöfu Kristínu Þorsteinsdóttur og fjölskyldu.

Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir og Kristín Erla Kristjánsdóttir sérnámslæknar hjá HSN á Akureyri.

Undanfarin ár hefur tekist nokkuð vel að laða að heilbrigðisstarfsfólk norður yfir heiðar til HSN á Akureyri, ekki síst læknanema og lækna á sérnámsgrunnsári (áður kandidatsár) sem síðar hafa ákveðið að sérmennta sig í heimilislækningum. Á HSN hefur fjöldi sérnámslækna í heimilislækningum vaxið hratt, eða úr fjórum í lok árs 2020 yfir í sautján stöður í heild hjá HSN, flestar þeirra setnar á Akureyri en 3 stöður á starfsstöðvum HSN utan Akureyrar, á Sauðárkróki, Siglufirði og Húsavík.

Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga hjá HSN, hefur verið í forsvari fyrir kynningu á starfsemi HSN fyrir læknanemum hérlendis og erlendis, ásamt sérnámslæknum og öðrum læknum hjá HSN sem hafa lagt hönd á plóginn við að kynna HSN sem vænlegan möguleika.

„Við erum að fá læknanema til okkar sem hafa bæði lært hérlendis og erlendis, meðal annars í Slóvakíu og í Ungverjalandi og kynnum fyrir þeim möguleikann á að taka sérnámsgrunnsárið á Akureyri. Við leggjum mikið upp úr því að þau finni sig velkomin og sem hluta af hópi. Við höfum byggt upp sterkt faglegt umhverfi og erum í sífelldri þróun og endurskoðun og að reyna að finna leiðir til að bæta verklag og innleiða tækninýjungar. Þetta hefur skilað því að læknanemar tengjast svæðinu betur, geta hugsað sér að vera hér áfram og velja jafnvel heimilislækningar sem sitt sérsvið. Nýja húsnæðið okkar í Sunnuhlíð er líka frábært dæmi um það hversu góðar aðstæður við getum boðið. Þetta getur haft jákvæð áhrif víðar fyrir okkur, læknar kynnast starfseminni í heild sinni og bera vonandi gott orð af því að vinna út á landi, sama hvar það gæti verið.“

Frá Danmörku til Reykjavíkur til Akureyrar – og fjölskyldan með

HSN hefur verið svo heppið undanfarið að fá til sín þrjá sérnámsgrunnlækna, nú sérnámslækna í heimilislækningum sem lærðu í Slóvakíu og Danmörku; þær Ólöfu Kristínu Þorsteinsdóttur, Kristínu Erlu Kristjánsdóttur og Melkorku Diljá Reynisdóttur. Melkorka mun hefja sérnám nú á vormánuðum. Allar ílengdust þær fyrir norðan, ákváðu að fara í sérnám í heimilislækningum og starfa hjá HSN á Akureyri.

Ólöf flutti ásamt eiginmanni sínum, Birki Erni Sveinssyni sérnámslækni í bæklunarlækningum, til Akureyrar á sérnámsgrunnsárinu sínu árið 2024. Hún er sérnámslæknir síðan í desember á síðasta ári.

„Ég er Reykvíkingur og reyndar við allar þrjár. Það stóð ekkert endilega til að fara út á land, en eftir að við maðurinn minn komum heim úr læknanáminu reyndist erfitt að koma sér fyrir í Reykjavík, við vorum nýkomin úr námi, með börn sem fengu ekki leikskólapláss og erfitt að fá húsnæði við hæfi. Við ákváðum því að fara norður í sérnámsgrunninn og það reyndist ein sú besta ákvörðun sem við höfum tekið, bæði faglega og persónulega. Í sérnámsgrunninum var ég svolítið á báðum áttum hvort ég ætti að sérhæfa mig í heimilislækningum eða bráðalækningum. Ég valdi heimilislækningar því þær veita mér betra tækifæri til að vinna náið og meira með skjólstæðingum. Það er þó óvæntur snúningur á því, því í sérnáminu hér á Akureyri fáum við að taka vaktir, og förum við þá með sjúkrabílunum í útköll þegar sinna þarf bráðatilfellum - svo ég fékk í raun það besta af hvoru tveggja.“

Teymisvinna tryggir betri þjónustu og faglegan stuðning

Nýtt fyrirkomulag teymisvinnu er einn af hornsteinum starfsins á HSN á Akureyri og mikilvægt atriði í betri þjónustu við skjólstæðinga. „Hér á heilsugæslustöðinni byrjum við öll daginn saman, ræðum mál sem komu upp á vöktunum, og svo vinnum við í minni þverfaglegum teymum; læknar, hjúkrunarfræðingar, heilbrigðisgagnafræðingar og stundum næringarfræðingar og sálfræðingar. Við skiptumst á hugmyndum fyrir lausnir, enda öll með ólíka innsýn og reynslu. Þess utan eflir þetta þjónustu við skjólstæðinga, því ef svo skyldi verða að læknir geti ekki fylgt eftir málum eftir vegna fjarveru, þá kemur teymið málinu í farveg. Þetta er samfella í þjónustu fyrir skjólstæðinga og faglegur stuðningur, sérstaklega fyrir unglækna sem eru að stíga sín fyrstu skref í starfi. Þetta bindur okkur líka betur saman sem heild, dreifir álagi og varnar kulnun. Ég vann mikið í teymum í mínu námi, en þá kom í ljós aftur og aftur að niðurstöður álitamála voru alltaf betri eftir því sem fleiri komu að málum. Ég er ennþá á því.“

Lífsgæði og ró út á landi

Fyrir Ólöfu og fjölskyldu hennar var það ekki bara starfið sem dró þau norður, heldur líka lífsgæðin. „Við sjáum alls ekki eftir því að hafa flutt hingað og við höfum þegar keypt okkur húsnæði. Þetta er útivistarparadís, hér er frábært að vera með börn, stutt í allt, öll nauðsynleg þjónusta og við getum farið nánast allt gangandi eða hjólandi, eins og við vorum vön úti. Það er gott jafnvægi á milli starfs og einkalífs. Það eru hrein lífsgæði.“