Mikilvægt að fá læknanema aftur heim – ekki síst á landsbyggðina
16. október 2026
Fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) tóku nýverið þátt í heimsókn til læknaháskólans í Martin í Slóvakíu ásamt fulltrúum frá Landspítala háskólasjúkrahúsi, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. Flestir íslenskir læknanemar erlendis stunda nám í Martin.

Fulltrúar HSN og SAk ásamt læknanemum.
„Tilgangur heimsóknarinnar var fyrst og fremst að kynna íslenska heilbrigðiskerfið og möguleika læknanema til að koma til Íslands í verknám og störf að loknu grunnnámi í læknisfræði, með sérstakri áherslu á sérnámsgrunnsárið. Jafnframt var markmiðið að byggja upp tengsl við læknanema og Læknadeildina í Martin og skapa þannig grundvöll fyrir áframhaldandi samstarfi og upplýsingamiðlun,“ segir Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga á HSN.
Alls mættu tæplega 100 íslenskir læknanemar á kynninguna, en hátt í 200 Íslendingar stunda læknanám við skólann. „Við á Sjúkrahúsinu á Akureyri höfum góða reynslu af því að fá til okkar bæði nema og lækna, sem eru að taka sín fyrstu skref í faginu. Það var því ánægjulegt að finna að í þessari ferð var mikill áhugi meðal nemenda. Þau fengu kynningu á umsóknarferlinu um sérnámsgrunnsárið á Íslandi, uppbyggingu námsársins og fjölbreytta möguleika á starfsstöðvum. Við lögðum áherslu á að kynna það faglega umhverfi og stuðning sem stendur sérnámsgrunnslæknum til boða og sýna þá möguleika sem það getur skapað fyrir áframhaldandi sérnám,“ segir Harpa Snædal, yfirlæknir á SAk.

HSN og SAk taka vel á móti læknanemum
Fulltrúar Íslands funduðu með rektor læknaháskólans í Martin, Andreu Calkovska, þar sem ræddir voru möguleikar á áframhaldandi og auknu samstarfi. Þá var háskólasjúkrahúsið í Martin skoðað, en þar fá nemendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, svo sem líffæraígræðslum, hjartaþræðingum og taugaskurðlækningum.
Reynslan sýnir að langflestir íslenskir læknanemar í Slóvakíu skila sér aftur heim, en sumir ljúka þó hluta af sérnámsgrunnsári (áður kandidatsár) sínu í öðrum löndum. „HSN og SAk bjóða nemum upp á fjölbreytt verknám undir góðri handleiðslu, en með því að kynnast starfseminni og byggja upp tengsl við starfsfólk og svæðið aukast jafnframt líkurnar á að nemendur snúi aftur að námi loknu eða velji sérnám sem nýtist heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni,“ segir Guðrún Dóra Clarke að lokum.
