Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Lífshlaupið 2026: Starfsfólk HSN á Akureyri eflir heilsu og vellíðan með rólujóga.

13. febrúar 2026

Flest verjum við stórum hluta dagsins í vinnunni og því skiptir máli að vinnustaðir styðji við heilsu og vellíðan starfsfólks. HSN hefur innleitt stefnu um heilsueflandi vinnustað og hvetur til ýmiskonar hreyfingar.

Hún er ýmis hreyfingin í Lífshlaupinu! Flest verjum við stórum hluta dagsins í vinnunni og því skiptir máli að vinnustaðir styðji við heilsu og vellíðan starfsfólks. HSN hefur innleitt stefnu um heilsueflandi vinnustað og hvetur meðal annars til ýmiskonar hreyfingar með veitingu heilsuræktarstyrkja.

Góður hópur starfsfólks HSN á Akureyri hefur undanfarið stundað rólujóga (Yoga Trapeze) undir leiðsögn Örnu Bjargar Sævarsdóttur, rólujógakennara og hjúkrunarfræðings hjá HSN á Akureyri.

Í rólujóga eru æfingar framkvæmdar með því að nýta rólu og handföng til að styðja við líkamann í hinum ýmsu stöðum*. Þátttakendur nefna meðal annars aukinn styrk, meiri liðleika, dýpri teygjur og tog á lendar hrygg og svo svífandi slökun sem ávinning af æfingum í rólujóga. Mörgum finnst gott að nota rólujóga samhliða annarri þjálfun, eins og hlaupum eða öðru.

*Fyrirvari: Þungaðar konur, fólk með nýlegt brjósklos, hjartveikir og einstaklingar með gláku.