Læknarnir Sigurður og Atli láta af störfum í Norður Þingeyjarsýslu – Gísli Ólafsson tekur við sem yfirlæknir
10. nóvember 2026
Tveir læknar í Norður Þingeyjarsýslu hafa nýverið látið af störfum, þeir Sigurður Halldórsson og Atli Árnason, en samanlagt hafa þeir skilað um 100 árum í starfi. Þeir voru kvaddir með virktum á dögunum og leystir út með gjöfum.

Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN ásamt Sigurði Halldórssyni og Atla Árnasyni. Gísli Ólafsson yfirlæknir á myndinni til hliðar.
Við færum þeim Sigurði og Atla okkar innilegustu þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins á Norðurþingi í öll þessi ár og óskum þeim velfarnaðar á þessum tímamótum.

Gísli tekur við
Það er ánægjulegt að segja frá því að Gísli Ólafsson, sem hefur verið í okkar röðum um árabil, tekur við starfi yfirlæknis hjá HSN í Norðurþingi.
Gísli lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1991 og sérgreinanámi í Noregi árið 1998. Hann hefur starfað hjá HSN á þremur svæðum í gegnum tíðina: á Blönduósi á árunum 2001–2006, á Húsavík 2015–2021 og í Norðurþingi frá árinu 2023. Þá hefur hann einnig starfað sem læknir í Västra Götaland í Svíþjóð, í Búðardal, í Biskupstungum og á heilsugæslunni á Sólvangi í Hafnarfirði.

Við óskum Gísla innilega til hamingju með nýja hlutverkið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Það er mikill fengur að fá reyndan samstarfsfélaga, sem þekkir vel til starfseminnar og samfélagsins, til að taka við þessu mikilvæga hlutverki.
