Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Kristín Margrét Gylfadóttir er nýr yfirhjúkrunarfræðingur svæðis hjá HSN í Fjallabyggð og Dalvík

3. febrúar 2026

Kristín Margrét er með BSc. próf í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaraprófi í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun.

Kristín Margrét Gylfadóttir hefur verið ráðin sem yfirhjúkrunarfræðingur svæðis hjá HSN í Fjallabyggð og Dalvík. Kristín Margrét er með BSc. próf í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaraprófi í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun.

Kristín Margrét býr yfir víðtækri stjórnunarreynslu innan heilbrigðisþjónustu, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur gegnt störfum forstöðuhjúkrunarfræðings á Kristnesspítala og þjónustustjóra endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu á Sjúkrahúsinu á Akureyri síðastliðin sjö ár, auk þess að hafa starfað um árabil í Noregi.

„Ég legg ríka áherslu á teymisvinnu, umbætur og þróun þjónustu ásamt því að stuðla að faglegu starfsumhverfi. Ég hef jafnframt sérstakan áhuga á því hvernig nýsköpun og tæknilausnir geta stutt við öfluga og örugga heilbrigðisþjónustu og komið að innleiðingu fjölbreyttra verkefna á því sviði“, segir Kristín Margrét.

Kristín Margrét er fædd og uppalinn á Ólafsfirði og er nýlega flutt aftur þangað ásamt fjölskyldu sinni. Í frítíma sínum sækir hún gleði í sköpun, hreyfingu og samveru með fjölskyldu.

Lífsmottó Kristínar Margrétar er:Að læra, skapa og vaxa í samspili við fólk, náttúru og lífið sjálft, með opnum huga og skapandi sýn.

Kristín Margrét mun taka við stöðu nýs yfirhjúkrunarfræðing svæðis í Fjallabyggð og Dalvík þann 1. mars nk. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í okkar öfluga hóp.