Hver er skráður þinn nánasti aðstandandi í sjúkraskrá?
7. maí 2026
Í maí fer af stað vitundavakning varðandi skráningu nánasta aðstandanda í sjúkraskrá einstaklinga. Markmiðið með verkefninu er að vekja athygli á mikilvægi þess og hvetja til uppfærslu á skráningunni eftir þörfum.

Af hverju er þetta mikilvægt?
Sjúkraskrárkerfið bíður uppá nokkra möguleika á skráningum aðstandanda og getur einstaklingur valið hvernig og hvort hans aðstandendur eru skráðir. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsmenn séu meðvitaðir um þessar mismunandi skráningar í sjúkraskrá svo einungis séu veittar upplýsingar til aðstandanda með leyfi sjúklings eða í samræmi við skráningu, eins og til dæmis í neyðartilvikum eða undir öðrum kringumstæðum þar sem aðstandandi má fá upplýsingar úr sjúkraskrá.
Hvernig og hvar get ég séð hvort ég er með skráðan nánasta aðstandanda?
Upplýsingar úr sjúkraskrá eru heilsufarsupplýsingar sem teljast til viðkvæmra persónuupplýsinga og gilda um þær strangar reglur bæði út frá lögum um sjúkraskrár og persónuverndarlögum. Skiptir því lykilmáli að gæta að öryggi upplýsinganna og tryggja að þær upplýsingar sem þar eru að finna séu tryggðar með viðeigandi hætti og þess gætt að þær verði ekki óviðkomandi aðilum aðgengilegar.
Til að sjá hvern eða hvort þú ert með skráðan nánasta aðstandanda í sjúkraskrá, til að bæta við skráningu aðstandanda eða breyta, þá hefurðu samband við móttöku þinnar heilsugæslu sem getur gefið viðeigandi upplýsingar.
