HSN Sauðárkróki fær veglegar gjafir frá Lionsklúbbi Sauðárkróks
20. apríl 2026
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki hefur nýlega fengið tvær veglegar gjafir frá Lionsklúbbi Sauðárkróks sem munu nýtast afar vel í starfsemi stofnunarinnar.

Starfsfólk HSN ásamt fulltrúum Lions á Sauðárkróki.
Um er að ræða annars vegar fullkomið glaðloftstæki og hins vegar sérhannað hlaupabretti til endurhæfingar, að heildarverðmæti 2.360.000 króna.
Gjafirnar munu bæta þjónustu við skjólstæðinga svo um munar. Hlaupabrettið er sérstaklega ætlað einstaklingum í endurhæfingu og hentar vel til þjálfunar þar sem það er mjúkt að ganga á því og einfalt í notkun. Glaðloftstækið mun nýtast til að draga úr kvíða hjá sjúklingum sem gangast undir smærri læknisfræðileg inngrip, svo sem bólusetningar og meðferð skurðsára.
„Það er með miklu þakklæti og ánægju sem við tökum á móti þessu gjöfum,“ segir Sigurbjörg Ólafsdóttir, yfirlæknir HSN á Sauðárkróki. „Gjafir sem þessar skipta miklu máli fyrir starfsemina okkar og stuðla að bættri þjónustu við skjólstæðinga.“

„Tækin munu nýtast afar vel í daglegri starfseminni og bæta aðstöðu til meðferðar og endurhæfingar,“ segir Fanney Ísfold Karlsdóttir, yfirsjúkraþjálfari HSN á Sauðárkróki. „Hlaupabrettið er sérstaklega vel hannað fyrir þarfir sjúkraþjálfunar og mun nýtast okkur mjög vel í endurhæfingu.“
Gjafir frá góðgerðarfélögum eins og Lions, skipta sköpum fyrir heilbrigðisþjónustu og gera okkur kleift að bæta aðstöðu og umönnun umfram það sem ella væri hægt.
Ljósmyndari: Hinrik Már Jónsson
