HSN horfir til Grænna skrefa við val á bílaleigubílum
11. mars 2022
HSN hefur að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og er liður í því að horfa til Grænna skrefa við val á bílaleigubílum.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/pOigcgLkCFlB853D9kI10/66cd97fafcd31136adbfc24aa4e4b89d/20220303_174930.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![Grænna skrefa við val á bílaleigubílum](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/pOigcgLkCFlB853D9kI10/66cd97fafcd31136adbfc24aa4e4b89d/20220303_174930.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Nú á dögunum fór framkvæmdastjóri fjármála og stoðsviða á rafmagnsbíl milli Akureyrar og Blönduós á einni hleðslu og voru 54 km eftir af hleðslunni.
Þegar komið var til Akureyrar var bíllinn settur í hleðslu og var bílstjórinn ánægður með endingu á rafhlöðunni þrátt fyrir mótvind og kulda.
Það er ekki einungis umhverfislega hagstætt að velja rafmagnsbíl heldur einnig rekstrarlega hagkvæmt þar sem kostnaður við dísel eða bensínbíl hefðir verið 6500-7500 krónum meiri.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3cj9qA5vFeqyUeRVkrJTLa/49889a1fad58ddf312737cb53be90225/20220303_160353.jpeg?w=50)
![Heilsugæsla](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3cj9qA5vFeqyUeRVkrJTLa/49889a1fad58ddf312737cb53be90225/20220303_160353.jpeg)