HSN á Blönduósi og Sauðárkróki fá góðar gjafir frá Oddfellow
24. apríl 2023
Hvor starfsstöð fær þrjár milljónir í styrk til tækjakaupa og færum við Oddfellow kærar þakkir fyrir styrkinn.
Í lok mars afhenti Oddfellowreglan á Íslandi styrki þar sem Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi og á Sauðárkróki voru meðal styrkþega. Styrkirnir voru afhentir þegar opið hús var í endurbættu húsnæði Oddfellow á Sauðárkróki.
Hvor starfsstöð fær þrjár milljónir í styrk til tækjakaupa og færum við Oddfellow kærar þakkir fyrir styrkinn.
Frétt um styrkjaafhendinguna birtist í Morgunblaðinu 8. apríl síðastliðinn.