Hrafnhildur Guðmundsdóttir ráðin deildarstjóri meðgöngu- og ungbarnaverndar hjá HSN Akureyri
4. apríl 2025
Nýverið var Hrafnhildur Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur ráðin í stöðu deildarstjóra meðgöngu- og ungbarnaverndar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri.

Hrafnhildur er okkur að góðu kunn, en hún hefur starfað hjá HSN síðan 2018, fyrst sem hjúkrunarfræðingur í ungbarnavernd og sem deildarstjóri ungbarnaverndar í afleysingum. Um áramótin 2023-2024 tók hún tímabundið við starfi deildarstjóra sameinaðrar deildar meðgöngu- og ungbarnaverndar og í framhaldi var hún fastráðin sem deildarstjóri sömu deildar. Áður starfaði Hrafnhildur sem hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hrafnhildur hefur lokið B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri auk þess að hafa klárað tvö ár af námi í iðjuþjálfun i sama skóla. Hrafnhildur er búsett á Akureyri ásamt eiginmann sínum og þremur dætrum.
Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í okkar góða hóp.