HSN tekur við rekstri hjúkrunarheimilisins Sæborg á Skagaströnd
10. janúar 2025
Heilbrigðisstofnun Norðurlands tekur við rekstri hjúkrunarheimilisins Sæborgar á Skagaströnd frá og með 1. maí 2025.
Er þetta samkvæmt ákvörðun fyrrum heilbrigðisráðherra Willums Þórs í kjölfarið á uppsögn Félags- og skólaþjónustu A-Hún bs. á samningum um rekstur heimilisins. Rekstur heimilisins hefur þyngst á undanförnum árum og verið dragbítur á rekstri þeirra sveitarfélaga sem að rekstrinum hafa staðið.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands rekur um 200 hjúkrunar- og sjúkrarými á Norðurlandi þ.m.t. á Blönduósi og Sauðárkróki. Fellur starfsemi Sæborgar því vel að starfsemi stofnunarinnar. Búast má við faglegri samlegð með yfirfærslu hjúkrunarheimilisins yfir til HSN. Munu starfsmenn þar fá aðgang að öflugri fagmenntun og upplýsinga- og gæðakerfum HSN.
Öllum starfsmönnum verður boðin áframhaldandi vinna hjá HSN. Ekki er fyrirhuguð veruleg breyting á starfsemi heimilisins frá því sem nú er.