Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Hátt í 150 manns sóttu fyrsta Vísinda- og fræðsludag HSN!

21. maí 2026

Við erum í skýjunum með frábæra mætingu á fyrsta Vísinda- og fræðsludag HSN sem haldinn var í gær, en um 150 manns sóttu hann á staðnum og aðrir 30 voru á streymi.

Ljóst er að slíkur vettvangur á sannarlega erindi í flóru fræðadaga innan heilbrigðisþjónustunnar og sérstaklega ánægjulegt að geta haldið dag sem þennan hér fyrir norðan.

Markmið dagsins var að skapa vettvang þar sem starfsfólk og nemar í heilbrigðisþjónustu gætu kynnt sér nýjustu rannsóknir, lausnir og verkefni sem starfsfólk vinnur að innan HSN í gegnum nám og starf, en flutt voru ellefu erindi auk umræðna í pallborði um tækni og heilbrigðisþjónustu.

Innan HSN er unnið mikið og fjölbreytt framfarastarf sem hefur það að markmiði að efla starfsemina og bæta þjónustu við skjólstæðinga. Dagur sem þessi skapar mikilvægt rými fyrir nýsköpun, rannsóknir og miðlun þekkingar og afar mikilvægt er að starfsfólk fái tækifæri til að kynna verkefni sín, rannsóknir og þróunarvinnu fyrir samstarfsfólki, nemum og öðrum áhugasömum.

Myndir: Þórhallur Jónsson