Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Gulur september – sérstök áhersla á ungt fólk

1. september 2026

September verður aftur gulur í ár þegar stofnanir, félagasamtök og aðrir samstarfsaðilar sameinast um að vekja athygli á geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tekur undir mikilvægan boðskap átaksins og hvetur íbúa Norðurlands til þátttöku.

Í Gulum september 2026 verður sérstök áhersla lögð á ungt fólk. Markmiðið er að efla samtal um geðheilbrigði, hvetja ungt fólk til að leita stuðnings þegar á þarf að halda og minna okkur öll á mikilvægi þess að sýna hvert öðru athygli, umhyggju og aðgát.

Sýnum stuðning og samstöðu

Fjölbreyttir viðburðir og verkefni fara fram um allt land í september. Skólar, vinnustaðir, íþrótta- og tómstundafélög, sveitarfélög, fyrirtæki og almenningur eru hvött til að taka þátt með sínum hætti.

Guli liturinn er tákn átaksins og stendur fyrir von, hlýju og samstöðu. Hægt er að taka þátt með því að klæðast gulu, skreyta eða lýsa upp með gulum lit, standa fyrir viðburðum eða einfaldlega nota tækifærið til að ræða líðan og minna á mikilvægi þess að leita eftir og veita stuðning.

Guli dagurinn verður svo þann 10. september, á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga. HSN hvetur starfsfólk og íbúa á Norðurlandi til að klæðast gulu þann dag og sýna þannig stuðning við geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.

Það er styrkur að leita hjálpar

Okkur getur öllum liðið illa og mikilvægt er að þurfa ekki að takast ein á við erfiðar tilfinningar. Ef þú hefur áhyggjur af eigin líðan eða líðan einhvers nákomins skaltu segja frá, hlusta og leita aðstoðar. Samtal getur skipt sköpum.

Hægt er að hafa samband við:

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Nánari upplýsingar um dagskrá, fræðsluefni og leiðir til þátttöku má finna á gulurseptember.is.

Fréttin er byggð á upplýsingum frá Embætti landlæknis.