Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Gulur september

6. september 2024

Áhersla á geðrækt og sjálfsvígsforvarnir í september. Hvatt er til þáttöku í gula deginum 10. september.

Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

Hvatt er til þess að taka þátt í gulum degi 10. september til að minna á mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna.

  • Öll sem geta eru hvött til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.

  • Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu, borðum gular veitingar og tökum myndir af gulri stemmingu. Myndin getur verið sjálfa eða af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum.

  • Til að vekja athygli sem víðast er lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember.

heimahjukrun

Við viljum einnig benda á að á á vegum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu verður boðið upp á fræðsluerindi á rafrænu formi í hádeginu alla fimmtudaga á meðan á átakinu stendur í samvinnu við Sálfræðingafélag íslands og fagfélag sálfræðinga í heilsugæslu. Á meðal þeirra sem flytja erindi er Theodóra Gunnarsdóttir sálfræðingur hjá HSN.

Fræðsluerindin eru öllum aðgengileg á teams. Hlekki er að finna í dagskrá hér fyrir neðan:

Dagskráin:

Hvað get ég gert til að viðhalda góðri líðan?

Fræðsluerindi í streymi kl.12:00-12:30 alla fimmtudaga í Gulum September.

Nánari upplýsingar um gulan september og dagskrá mánaðarins er að finna á gulurseptember.is

Það er hjálp að fá

  • Símaráðgjöf Heilsuveru 1700 og netspjallið á heilsuvera.is (opið frá 8-22)

  • Hjálparsími Rauða krossins 1717 og netspjalll á 1717.is allan sólarhringinn

  • Píetasíminn 552 2218 (opið allan sólarhringinn)

  • Sjá nánar á sjalfsvig.is