Erla Bjarnadóttir ráðin innheimtustjóri hjá HSN
31. mars 2023
Erla Bjarnadóttir ráðin innheimtustjóri hjá HSN
Erla Bjarnadóttir hefur verið ráðin sem innheimtustjóri HSN og mun taka við af Lindu Nínu Haraldardóttur sem starfað hefur hjá stofnuninni undanfarin ár. Við óskum Erlu góðs gengis í nýju starfi og þökkum Lindu Nínu kærlega fyrir hennar góðu störf.
Erla er viðskiptafræðingur og hefur starfað sem bókari hjá HSN síðan 2019, áður var hún hjá Eimskip á Húsavík.